Bjarg byggir 40 nýjar íbúðir í Safamýri   

Skóflustunga tekin í Safamýri

Bjarg íbúðafélag mun reisa 40 leiguíbúðir á stórri lóð við Safamýri og Háaleitisbraut. Einar Þorsteinsson borgarstjóri ásamt fulltrúum Bjargs, ASÍ, BSRB og verktaka tóku fyrstu skóflustunguna í dag. 

Íbúðirnar verða tilbúnar í mai 2026 gangi áætlanir Bjargs íbúðafélags eftir og ráðgerir félagið að opna fyrir umsóknir sumarið 2025.  

Byggð verða tvö 4ra hæða  fjölbýlishús.  Íbúðir verða tveggja til fimm herbergja. Staðsetningin er góð með tilliti til samgangna, þjónustu og tenginga við stofnbrautir, skóla og leikskóla. Gæludýrahald verður leyft í hluta íbúðanna. 

Hönnuðir eru A2F og Gríma arkitektar. Ferill verkfræðistofa, Kriston raflagnahönnun og ÍSTAK annast byggingarframkvæmdir.  

Safamýri 58 - séð úr norðaustri

Hús séð frá Safamýri og Háaleitisbraut. Hönnunarmyndir eru unnar af A2F / Grímu arkitektum. Birt með leyfi Bjargs.

Safamýri 58 - séð úr suðaustri

Húsin séð frá Háaleitisbraut og Miklubraut.  

Félag án hagnarmarkmiða 

Bjarg íbúðafélag er sjálfseignarstofnun rekin án hagnaðarmarkmiða og hefur að markmiði að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum öruggt íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Félagið hefur byggt og afhent leigjendum rúmlega þúsund íbúðir og hefur í undirbúningi, hönnunarferli eða í byggingu um 500 íbúðir. Af þessum 1.500 íbúðum eru um 1.000 í Reykjavík. Samstarf við Bjarg er hluti af húsnæðisáætlun Reykjavíkur.  

 

Tengt efni: