Auglýst eftir styrkumsóknum í Vestnorræna sjóðinn

Mannlíf Menning og listir

""

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í Vestnorræna höfuðborgasjóðinn. Tilgangur sjóðsins er að efla skilning og samvinnu milli kjörinna fulltrúa og íbúa í Nuuk, Reykjavík og Þórshöfn og styðja ýmsa starfsemi í þessu skyni, fyrst og fremst á sviði menningarmála.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Vestnorræna höfuðborgarsjóðnum til verkefna sem  tengjast samskiptum milli höfuðborganna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.

Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði.

Umsókn skal beint til:
Vestnorræni höfuðborgasjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar
b.t. skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
Ráðhúsi Reykjavíkur
Tjarnargötu 11
101 Reykjavík

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí nk. og koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu.

Sækja umsóknareyðublöð.

Reglur um sjóðinn

Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4500.

Stjórn Vestnorræna sjóðsins er skipuð borgarstjórum höfuðborganna þriggja ásamt tveimur kjörnum fulltrúum frá hverri borg. Aðsetur sjóðsins er í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í júní nk.