Álfsnes hentar vel fyrir hringrásargarð

Atvinnumál Framkvæmdir

Álfsnes hentar vel fyrir hringrásargarð

Hringrásargarður í Álfsnesi er spennandi tækifæri til að byggja upp grænt atvinnusvæði á heimsmælikvarða. Þetta er mat þverfaglegs ráðgjafateymis sem fór ofan í saumana á hvort fýsilegt væri að byggja upp slíkt svæði í Álfsnesi. Borgarráð hefur gefið grænt ljós á að unnið verði að framgangi verkefnisins með tillögur ráðgjafateymisins til hliðsjónar.

Í viðamikilli skýrslu sem lögð var fram má finna hugmyndir að framtíðaráformum svæðisins og hvernig skipulagi þess og aðgerðaáætlun geti verið háttað svo hringrásarferlar séu framkvæmanlegir á þessum skala. Markmið hringrásargarðs er að draga úr urðun og mengun með því að líta á muni og efni sem fellur til hjá íbúum og fyrirtækjum sem auðlindir. 

Auðlindastraumar á höfuðborgarsvæðinu og mögulegt iðnaðarvistkerfi er greint í samantekt ráðgjafanna; fyrstu grófu drög að skipulagi svæðisins teiknuð upp ásamt því að skýrslan sýnir möguleg rekstrarform og tillögur um verkáætlun, fjármögnun og fleira. 

Niðurstaða skýrslunnar er sú að staðsetningin í Álfsnesi henti vel þar sem svæðið býr yfir góðum núverandi og framtíðar innviðum á borð við höfn og vegtengingum í margar áttir sem eru nú þegar í kortunum. Á svæðinu eru fjölbreyttir auðlindastraumar sem byggja má rekstur í kringum. Á svæðinu er t.a.m. núverandi urðunarstaður Sorpu ásamt gas- og jarðgerðarstöðinni GAJA sem mun verða þungamiðja hringrásargarðsins.

Fýsileikagreiningin er einungis fyrsta skref í þróun hringrásargarðs. Meðal næstu skrefa í verkefninu sem samþykkt var í borgarráði er að vinna viðskiptaáætlun fyrir hringrásargarðinn á grunni núverandi gagna.

Ráðgjafateymi sem vann fýsileikagreininguna er ReSource International, M/Studio og Transition Labs. Teymið var valið að loknu opnu útboði þar sem leitað var sérstaklega eftir teymum með fjölbreytta reynslu og þekkingu. 

Auðlindagarður á þessum skala yrði mikilvæg stoð í því hringrásarhagkerfi, sem gert er ráð fyrir í Græna planinu, heildarstefnu Reykjavíkurborgar til 2030, til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.  Á heimasíðu Græna plansins má sjá frekari lýsingu á verkefninu.

 Tengt efni: