Akstursstefnu í Grófinni og Tryggvagötu breytt

Samgöngur

Grófin

Akstursstefnu á Tryggvagötu milli Lækjargötu og Pósthússtrætis hefur verið breytt aftur til vesturs.

Síðustu ár hefur akstursstefna á götukaflanum verið til bráðabirgða til austurs vegna framkvæmda í götunni. Það var gert þar sem sú tenging er eina tenging út úr Kvosinni þegar ekið er norður Pósthússtræti frá Kirkjustræti eða til suðurs Naustina frá Tryggvagötu.

Þar sem framkvæmdum sem höfðu áhrif á akstur um Tryggvagötu er lokið, var komið að því að snúa akstursstefnu á þeim kafla.

Henni var tímabundið snúið til austurs, en verður nú aftur snúið til vesturs.

Samhliða ofangreindum breytingum verða einnig smávægilegar breytingar á akstursstefnum Grófarinnar og Naustanna norðan Tryggvagötu. Þannig verður Grófin nú einstefna til norðurs en Naustin einstefna til suðurs. Var þetta gert svo hægt verði að komast að bílastæði bak við Hafnarhús óháð því hvort ekið sé frá Lækjargötu eða Geirsgötu.