Áhersla á umferðaröryggi, samgöngubætur og umhirðu hjá íbúum Vesturbæjar og Miðborgar
Mannlíf Stjórnsýsla
Áhugaverðar umræður fóru fram í dag á íbúafundum borgarstjóra í Vesturbæ og Miðborg þar sem meðal annars var rætt um innviði fyrir gangandi og hjólandi, umferðaröryggi, leikskóla- og bílastæðamál auk umhirðu og hreinsunar. Um var að ræða síðustu fundina í fundaröð borgarstjóra með íbúum Reykjavíkur.
Íbúafundur í Vesturbæ var haldinn í Vesturbæjarskóla klukkan 11 á þessum sólríka laugardegi í Reykjavík.
Var þetta níundi íbúafundur Einars Þorsteinssonar borgarstjóra í hverfum borgarinnar og eins og fyrri fundir hófst þessi á samtali um hvað íbúarnir kynnu best að meta við hverfið sitt. Sagðist hann þannig vilja fá vísbendingar um hverju væri mikilvægt að hlúa að í hverfinu og jafnvel fá hugmyndir um hvaða góðu þætti mætti yfirfæra á önnur hverfi.
Íbúar Vesturbæjar voru ekki í vandræðum með að nefna margt gott við hverfið sitt og var Vesturbæjarlaugin oftast nefnd, ásamt fallegu umhverfi og góðri staðsetningu. Íbúar voru líka ánægðir með hversu stutt væri að sækja í fjölbreytt menningarlíf auk þess sem þeir nefndu hafið, skólana, gönguvænt umhverfi, marga leikvelli og hið ástkæra íþróttafélag KR, svo eitthvað sé nefnt.
Bíllaus kalla eftir samgöngubótum
Umferðaröryggi lá einna þyngst á fundarfólki, sem vildi umbætur í þeim málaflokki. Einnig var talað um bót á innviðum fyrir hjólandi og gangandi, enda væru mörg bíllaus í hverfinu. Tryggja þyrfti fjármagn til að klára endurbætur við Hagaskóla og sum nefndu að bæta mætti tengingu við verslunarsvæðið á Granda, þá helst með bættum strætósamgöngum. Kallað var eftir endurmati á stöðunni hvað varðar gjaldskyldu bílastæða á íbúðasvæðum. „Fleiri ærslabelgi,“ nefndi svo einn og hlaut góðar undirtektir, enda hafa ærslabelgirnir lagst vel í borgarbúa og oft hlotið kosningu í lýðræðisverkefninu Hverfið mitt.
Leikskólamál voru rædd enda staðan í Vesturbænum slæm, á meðan hún er mun betri í ýmsum öðrum hverfum. Sagði borgarstjóri ekki skorta fjármagn í þeim málaflokki en að takast þyrfti á við ýmsar aðrar hindranir og grunn- og leikskólamál væru í algjörum forgangi.
„Ég fæddist ekki í hverfinu en kom eins fljótt og ég gat,“ sagði einn fundargesta og kvaðst fá heimþrá færi hann í önnur hverfi. Tekið var undir þetta með gleði og varð viðstöddum tíðrætt um þorpsbrag og góðan hverfisanda.
Notast var við tæknina og gátu fundargestir slegið sínar ábendingar inn í símana sína og birtist svo samantekt á glærum fyrir alla fundargesti.
Ánægja með fjölbreytni á öllum sviðum
Fundurinn í Miðborginni var haldinn í Spennistöðinni við Austurbæjarskóla klukkan 14 og var afar vel sóttur. Þegar rætt var um allt það jákvæða í hverfinu var Tjörnin ofarlega á blaði sem og staðsetning miðsvæðis og fjölbreytni í menningu, þjónustu, húsagerð og öðru.
„Það besta við hverfið okkar eru öll torgin og fleiri eru sífellt að bætast við,“ nefndi ein, við góðar undirtektir flestra viðstaddra. „Það er alltaf líf og fjör og fullt af fólki á torgunum. Æði!“
„Það besta við hverfið okkar eru öll torgin og fleiri eru sífellt að bætast við“
Íbúakærleikur orð dagsins
Einna efst á blaði í umræðu um hvað mætti betur fara voru umhirða og hreinsun. Þá var bílastæðavandinn ræddur auk veggjakrots, en skiptar skoðanir voru um þéttingu byggðar og hvort þar ætti að bæta í eða draga úr. Aukið samráð við íbúa var einnig nefnt, ásamt sorphirðu og umferðarhraða. Sum kölluðu eftir fleiri vistgötum og einn fundargestur lagði til að hólmarnir í Tjörninni fengju yfirhalningu.
Íbúakærleikur var nefndur sérstaklega og eftir daginn stóð það orð einna helst upp úr. Íbúar þessara hverfa skynja velvild og væntumþykju í nærumhverfi sínu og vilja halda í þorpsbrag og góða hverfismenningu.
Þetta voru síðustu fundirnir í fundaröð borgarstjóra í hverfum borgarinnar og þökkum við öllum sem mættu kærlega fyrir þátttökuna.