62% ökutækja ekki á nöglum

Samgöngur

Nagladekk

Hlutfall negldra dekkja og ónegldra var reiknað í vikunni eftir talningu. Hlutfallið skiptist þannig að 38% ökutækja eru á negldum dekkjum og 62% á öðrum dekkjum. Hlutfallið er einnig aðeins lægra en í síðustu talningu í janúar þegar hlutfallið var 40%.

Talningar síðastliðin ár

Á sama tíma í fyrra var hlutfallið 40% á nöglum og 60% á ónegldum. 

Fyrir tveimur árum var hlutfallið einnig á sama veg eða  40% en fyrir 3 árum var það 41,5% og fyrir 4 árum var það 41%.  

Hlutfallið er því búið að vera sambærilegt á þessum tíma árs, síðastliðin fjögur ár eða í kringum 40% en þó má fullyrða að bilið vaxi og fleiri velji ónegld dekk en áður. 

Næsta talning er áætluð um miðjan apríl.