Vinnuskólinn gerir það gott í sumar

Vinnuskólinn

Metaðsókn er í Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar og í dag lýkur fyrsta starfstímabilinu. Næstu hópar munu starfa 3.–23. júlí og þriðja tímabilið stendur 24. júlí til 14. ágúst. Starfið hefur gengið vel og er bryddað upp á ýmsu til að hvetja nemendur. Nefna má beðakeppni milli hópa sem sýnir góðan metnað nemenda. Teknar eru myndir af beðum fyrir og eftir vinnuna og árangurinn metinn.

Áhersla á fræðslu

Vinnuskóli Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að veita nemendum góða upplifun og fræðslu í fyrstu skrefum þeirra á vinnumarkaði, meðal annars fræðslu um launaseðla, ferilskrár, vinnusiðferði og tekjuskatt. Fræðslan tekur mið af aldri nemenda. Þá má nefna Jafningjafræðslu í samstarfi við Hitt húsið. Fræðarar Jafningjafræðslunnar heimsækja alla hópa 9. og 10. bekkjar og miðla fjölbreyttri forvarnarfræðslu.

Heimsókn í Hafnarhúsið

Tíðindamaður Vinnuskólans hitti tvo hópa núna í vikunni, annan í Hafnarhúsinu í Tryggvagötu og hinn við Einarssafn á Skólavörðuholti. 

Í Hafnarhúsi fá nemendur fræðslu um Listasafn Reykjavíkur og skoðuða sérstaklega sýningu Karin Sanders sem er vel þekkt þýsk listakona sem býr og starfar í Berlín en hefur á síðustu þrjátíu árum dvalið talsvert á Íslandi og nýtt landið sem viðfang í mörgum verka sinna. 

Nemendur skoða sýninguna vel og ræða verkin og gefa þeim einkunn. Þetta er bæði skapandi og uppbyggilegt. Mörg verka Sanders byggja á þátttöku sýningargesta eða áhrifum umhverfisins auk þess sem inngrip hennar í rými safnsins kalla á hugleiðingar um staðinn, tilgang hans og eðli. Verkin henta því mjög vel fyrir nemendur.

Flokkur 17. ára við Einarssafn

Garðurinn og túnin umhverfis Einarssafn eru nú glæsileg á að líta, en þar hefur fríður flokkur 17. ára nemenda verið að störfum. Leiðbeinandi þeirra er sérlega ánægð með hópinn og segir mikinn metnað til staðar. Arfinn er horfinn og þau hafa kantskorið reitina, hreinsað gangstéttina utan við garðinn og hvaðeina sem snyrta má. Einnig sett kurl á nokkur vel valin beð. 

Vinnuskólinn hefur flaggað Grænfánanum frá 2008 en hann er viðurkenning fyrir góðan árangur í starfinu.