Vinningstillaga fyrir Hallahverfi kynnt
Vinningstillaga í hugmyndaleit vegna rammaskipulagsgerðar á svæði Halla og nágrennis í Úlfarsárdal var kynnt á opnum kynningarfundi borgarstjóra um húsnæðismál í dag. Hugmyndasamkeppnin er eitt af fyrstu skrefum til að þróa framtíðarsýn fyrir skipulagsvinnu í Höllum.
Arkitektastofan Nordic Office of Architecture í samstarfi við Eflu og dönsku landslagsarkitektastofuna SLA báru sigur úr bítum með tillöguna Hallar – samfélag við hlíðarrætur. Í tillögunni er lögð rík áhersla á að setja náttúruna í forgrunn við mótun alls umhverfisins.
Markmið skipulagstillögunnar er að leggja grunn að öflugu og eftirsóknarverðu hverfi sem styrkir nærumhverfið og bætir lífsgæði þeirra sem búa, starfa og sækja svæðið. Áhersla er lögð á samspil byggðar og náttúru, uppbyggingu sem styður við virkan lífsstíl og sterka samfélagsheild.
Ný hverfismiðja og sterk tenging við nærumhverfi
Gert er ráð fyrir nýrri hverfismiðju með fjölbreyttri starfsemi, þjónustu og stofnunum. Almenningsrými í náttúrulegu umhverfi verða lykilþættir í uppbyggingu svæðisins og ætlað er að skapa aðstæður þar sem fólk kýs að búa og starfa allt árið um kring.
Í Höllum er gert ráð fyrir tveimur skólahverfum sem geta einnig þjónað nýrri byggð við Leirtjörn. Skólarnir verða staðsettir miðsvæðis í svokölluðum grænum geira sem liggur í gegnum byggðina og tengist útivistar- og náttúrusvæðum í kring.
Í tillögunni er lögð megináhersla á vistvæna ferðamáta, svo sem göngu og hjólreiðar, þar sem íbúar geta notið náttúrunnar á leið sinni milli staða. Almenningssamgöngur fá forgang með skilgreindum almenningssamgönguási. Umferð akandi tekur mið af öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, með öruggum þverunum og hraðalækkandi aðgerðum. Þá er gert ráð fyrir að allt svæðið sé innan tíu mínútna göngu frá almenningssamgönguási.
Hugmyndaleit og næstu skref
Hugmyndaleitin fól í sér mótun rammaskipulags þar sem kallað var eftir skýrri framtíðarsýn fyrir svæðið. Horft var til þátta á borð við landnotkunar, byggðamynsturs, þéttleika, íbúðasamsetningar, innviða og tenginga við nærliggjandi hverfi og náttúru.
Leitað var til arkitektastofa með reynslu af þróun nýrra hverfa og rammaskipulagsgerðar í Reykjavík. Þátttakendur í hugmyndaleitinni voru Teiknistofan Stika, FOJAB arkitekter og Nordic Office of Architecture. Í framhaldinu verður gerður þjónustusamningur við vinningstillöguhafa um áframhaldandi þróun rammaskipulagsins og gerð deiliskipulags fyrir hluta svæðisins. Á næstu vikum er stefnt að samráði við íbúa og aðra hagsmunaaðila þar sem tækifæri gefst til að koma með athugasemdir til frekari mótunar á tillögunni.