Viljayfirlýsing um framtíðarhúsnæði LHÍ í Stakkahlíð undirrituð
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgarstjórinn í Reykjavík og rektor Listaháskóla Íslands undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framtíðarstaðsetningu Listaháskólans í Stakkahlíð. Undirritun fór fram í Listasafni Reykjavíkur þar sem útskriftasýning Listaháskólans var opnuð.
Um langt skeið hefur verið unnið að því að finna varanlega lausn á húsnæðismálum Listaháskólans og koma skólanum undir eitt þak í fyrsta sinn frá stofnun hans. Ýmsir valkostir hafa verið skoðaðir undir starfsemina en nú liggur fyrir raunhæfur kostur á hentugri framtíðarstaðsetningu undir þessa mikilvægu starfsemi. Með undirritun viljayfirlýsingarinnar er því fallið frá fyrri áformum um flutning skólans í Tollhúsið og á Skólavörðuholt, enda liggur fyrir að þeir kostir hefðu verið seinlegri, kallað á umfangsmeiri framkvæmdir og útgjöld, auk þess sem möguleikar til framtíðaruppbyggingar hefðu verið takmarkaðri.
Uppbyggingin í Stakkahlíð felur í sér að allar deildir Listaháskólans munu sameinast undir einu þaki en í dag er skólinn starfræktur í fjórum byggingum, þar á meðal í Stakkahlíð. Samkvæmt greiningu mætir núverandi aðstaða við Stakkahlíð vel fjölbreyttum þörfum Listaháskólans. Gert er ráð fyrir endurbótum og að byggt verði við húsnæðið til að koma starfseminni þar fyrir til framtíðar. Í fyrsta áfanga verður ráðist í verulegar endurbætur á núverandi húsnæði undir starfsemi háskólans. Í öðrum áfanga verður farið í uppbyggingu á svæðinu til að koma annarri sérhæfðri starfsemi háskólans fyrir sem rúmast ekki innan núverandi bygginga á grundvelli þarfagreiningar.
Reykjavíkurborg hyggst beita sér fyrir skjótri endurskoðun á deiliskipulagi svæðisins svo hægt verði að byggja upp framtíðaraðstöðu fyrir starfsemi skólans. Þá er gert ráð fyrir að ekki verði farið fram á greiðslu af hálfu borgarinnar vegna byggingarréttar við núverandi húsnæði við Stakkahlíð, enda sé um almannaþjónustustarfsemi að ræða.
Stefnt er að því að skipulagslýsing um framtíðarþróun á reitnum við Laugarnesveg sem hýsir nú núverandi aðstöðu skólans liggi fyrir eigi síðar en í nóvember. Miðað er við að allur ágóði ríkisins verði nýttur til að standa undir þeirri mikilvægu fjárfestingu að koma starfsemi Listaháskóla Íslands varanlega fyrir í Stakkahlíð með tilheyrandi uppbyggingu. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mun beita sér fyrir því að Listaháskólinn geti staðið undir leigu á endurbættu húsnæði við Stakkahlíð auk framtíðaruppbyggingar við gerð næstu fjárlaga og fjármálaáætlunar.