Víðtæk áhrif óveðurs en allt gengið vel fyrir sig í Reykjavík
Allt hefur gengið vel fyrir sig í óveðrinu á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Aðgerðastjórn almannavarna segir mest um vert að almenningur hafi farið eftir fyrirmælum og haldið sig heima við á meðan lægðin gekk yfir.
Í morgun kom í ljós að það var ekki að ástæðulausu að gefnar voru út viðvaranir vegna veðursins og það er þakkarvert að fólk hafi farið eftir þeim. Appelsínugul viðvörun hefur nú verið felld úr gildi. Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins og Reykjavíkurborg ítreka þakkir sínar til fólks fyrir að hafa ekki verið á ferðinni í morgun eins og óskað var eftir. Það létti mjög störf allra viðbragðsaðila.
Víðtæk áhrif
Veðrið hafði víðtæk áhrif á höfuðborgarsvæðinu; samgöngur lágu að miklu leyti niðri, vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu var lokað, öllu flugi frestað og strætó hætti að ganga. Snjóhreinsun hefur verið í gangi á stofnbrautum í morgun og verið til aðstoðar þar sem ástandið hefur verið hvað verst. Færð hefur þyngst síðustu klukkustundirnar í borginni og hálka er á akbrautum, og það mun taka nokkrar klukkustundir að koma færð á götum í samt lag. Hjalti Jóhannes Guðmundsson, skrifstofustjóri skrifstofu borgarlandsins, segir að best væri að fólk héldi sig heima áfram eins og hægt er, svo að snjóhreinsun geti gengið vel fyrir sig á næstu klukkustundum. Búist er við frosti á morgun.
62% minni umferð
Heildarfjöldi ökutækja á höfuðborgarsvæðinu á alls 110 talningarstöðum þegar skoðaður er fjöldi frá miðnætti til hádegis sýnir að umferðin er 62% minni samanborið við umferðina í gær. Heildarfjöldi ökutækja var 566.322 á þessu tímabili í gær, 25. mars, en 217.799 ökutæki í dag, 26. mars. Munurinn er heil 348.523 ökutæki miðað við þessa talningarstaði.
Leikskólar og frístundaheimili opna en grunnskólar ekki
Leikskóla- og frístundastarf hefst að nýju þegar dregur úr veðurofsanum, en færð á vegum er þung og mikilvægt að fólk fari ekki of snemma af stað. Rétt er að taka fram að einungis frístundaheimili munu opna í dag þar sem skóladegi grunnskólans er svo gott sem lokið.
Mús vildi komast inn úr veðrinu
Tiltölulega fá börn mættu í leik- og grunnskóla borgarinnar í morgun; af 5.468 börnum í borgarreknum leikskólum mættu 161 og í grunnskólum mættu allt frá engu og upp í örfá börn á hverjum stað. Lágmarksmönnun var í skólum borgarinnar og komu börn helst vegna vinnuaðstæðna foreldra. Nokkrar tilkynningar bárust um mögulega mætingu en flestar voru dregnar til baka, þó beið lítil mús á þröskuldi í einum skólanum sem vildi komast inn úr veðrinu. Börnin sem mættu gerðu ýmislegt skemmtilegt með starfsfólkinu, fóru meðal annars í leiki, horfðu á bíómynd eða föndruðu og óhætt er að segja að dagurinn hafi gengið vel.
Menntabúðir sem áttu að vera á Menntavísindasviði Háskóla Íslands í Sögu í dag hefur verið frestað en það er vettvangur þar sem fólk innan menntakerfisins hittist og miðlar verkefnum, reynslu og þekkingu. Ný dagsetning verður auglýst síðar.
Ráðstafanir gerðar svo nauðsynleg velferðarþjónusta félli ekki niður
Starfsfólk í velferðarþjónustu brást hratt við og gerði ráðstafanir í gærkvöldi til að dagurinn í dag gæti gengið vel fyrir sig. Í heimaþjónustu var farið með nauðsynleg lyf dagsins í dag í heimahús í gærkvöldi og starfsfólk samnýtti stærri bíla á ferðum sínum í morgun. Þjónustu sem ekki telst nauðsynleg, á borð við þrif, var frestað.
Margir íbúar í íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk hafa verið heima í dag í stað þess að sækja skóla, vinnu eða virkni, þar sem akstursþjónusta hefur legið niðri. Gera þurfti ráð fyrir því í mönnun íbúðakjarna. Starfsfólk á næturvöktum vann lengur í einhverjum tilfellum og annað starfsfólk mætti snemma á vaktina í morgun, til að vera á undan veðrinu. Það sama á við um starfsfólk Mánabergs, sem er heimili fyrir börn á vegum Barnaverndar Reykjavíkur, hjúkrunarheimilið Droplaugarstaði og aðra starfsstaði þar sem þjónusta má ekki raskast.
Félagsmiðstöðvar fyrir eldra fólk sem staðsettar eru víða um borgina eru opnar en færri hafa verið á ferli en vanalega og dagskrá hefur verið í lágmarki. Hádegismatur var borinn fram í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum borgarinnar líkt og vanalega.
Neyðarskýli fyrir heimilislaust fólk eru opin í dag en þau eru venjulega lokuð á milli klukkan 10 og 17 á daginn. Gerðar voru ráðstafanir til að koma þeim skilaboðum örugglega til gesta neyðarskýla. Vettvangs- og ráðgjafarteymi Reykjavíkurborgar hefur veitt ráðgjöf gegnum síma og aðstoðaði meðal annars fólk við að komast í skjól áður en veðrið brast á snemma í morgun.
Sorphirða í borginni
Sorphirða Reykjavíkurborgar hóf störf í morgun klukkan sjö og var unnið til rúmlega níu og var því hætt áður en bætti í vindinn og veðrið varð hvað verst. Ekki verður unnið meira í dag og starfsfólk farið heim en unnið verður á morgun föstudag og á laugardag.
Sorphirðan er núna að hirða sorp í Árbæ, Grafarholti og í Grafarvogi. Í morgun náðist að tæma götur þar sem veðrið var skást að mati flokksstjóra. Farið verður í aðrar götur sem ekki var hægt að tæma í dag þegar sorphirða hefst að nýju.
Sorphirðan er að búa sig undir páskana en meira fellur til af úrgangi hjá íbúum yfir hátíðir. Því þarf að nota vel þann tíma sem gefst til sorphirðu til að þjónusta íbúa, sérstaklega þegar ítrekað er von á veðri sem getur haft áhrif á sorphirðu.
Aukin þjónusta er við sorphirðu fyrir stórhátíðir. Vinnudagar í dymbilviku eru lengri auk þess sem unnið verður allan skírdag, fimmtudaginn 2. apríl. Frí verður hjá starfsfólki sorphirðu föstudaginn langa, páskadag og annan dag páska. Sorphirða hefst aftur þriðjudaginn 7. apríl og verða vinnudagar eftir páska lengri ef með þarf.
Sorphirðan biður íbúa í Árbæ, Grafarholti og Grafarvogi að huga að aðgengi að sorpílátum eftir að veðrið gengur niður. Slæmt aðgengi tefur sorphirðu og getur orðið til þess að ekki sé hægt að hirða sorp.