Veittu styrki til verkefna sem styðja við börn í viðkvæmri stöðu
Velferðarráð veitti í gær árlega styrki sína úr borgarsjóði til verkefna á sviði velferðarmála. Að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á verkefni sem styðja við börn í viðkvæmri stöðu og fengu ellefu félög eða einstaklingar styrk.
Í styrkjanefndinni voru borgarfulltrúarnir Guðný Maja Riba og Helgi Áss Grétarsson, auk Rannveigar Einarsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs. Styrkjanefndin mat umsóknirnar út frá sjö þáttum og gaf umsóknunum stig í samræmi við það.
Heildarupphæð styrkja sem úthlutað er í dag var rúm 41 milljón króna. Sex fengu þjónustusamning til eins árs og þrír þjónustusamning til þriggja ára.
Tvö fengu almennan styrk:
Ásdís Birna Bjarkadóttir fyrir bók fyrir börn fanga - 600.000 krónur.
Vinaskákfélagið fyrir verkefnið Allir geta teflt skák – 300.000 krónur.
Sex félög fengu þjónustusamning til eins árs:
Hugarafl fyrir notendastýrða starfsemi byggða á valdeflingu og batahugmyndafræði – 3.000.000 krónur.
Katarzyna Beata Kubis vegna stuðningshóps fyrir erlenda foreldra fatlaðra barna – 1.500.000 krónur.
Listvinnzlan fyrir Listorkuver – 3.000.000 kr.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur fyrir Aðstoð við bágstadda – 2.900.000 kr.
Okkar heimur fyrir fjölskyldusmiðjur – 2.000.000 kr.
Sjónarhóll ráðgjafarmiðstöð vegna ráðgjafar og stuðnings – 3.000.000 kr.
Þrjú félög fengu þjónustusamning til þriggja ára:
Bergið headspace vegna ráðgjafar og stuðnings fyrir 12–25 ára – 5.000.000 króna á ári í þrjú ár.
Foreldrahús fyrir áfengis- og vímuefnaráðgjöf – 10.000.000 króna á ári í þrjú ár.
Memmm Play fyrir Opna leikskólinn – 10 .000.000 krónur á ári í þrjú ár.