Vakin er athygli á breyttri gjaldskrá sundlauga, Ylstrandar og Fjölskyldu- og húsdýragarðs

Alltaf gaman í sundi
Fullt af fólki í sundi en þau sjást ekki vel

Ný gjaldskrá hjá sundlaugum Reykjavíkurborgar, Ylströndinni og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum tekur gildi 5. maí. Með breytingunum er lögð áhersla á að gera reglulega notkun aðgengilegri og jafnframt einfalda fyrirkomulag aðgangs fyrir gesti.

Ódýrari árskort

Árskort fullorðinna í sundlaugar Reykjavíkur lækkar um 29%, úr 48 þúsund krónum í 34 þúsund krónur, sem gerir það að hagstæðasta árskortinu í sund á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir fjölskyldu með tvo foreldra þýðir þetta minnst 28 þúsund krónu sparnað á ári. Lækkanirnar ná einnig til annarrar mikilvægrar afþreyingar. Árskort barna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn lækkar um 77%, úr 17.600 krónum í 4 þúsund krónur og árskort fullorðinna lækkar um 60%. Á Ylströndina lækkar árskortið um 21%.

Breyting fyrir börn og ungmenni

Ein stærsta breytingin er að öll börn og ungmenni 17 ára og yngri með lögheimili í Reykjavík fá frían aðgang í sund og á Ylströndina, en hingað til hafa 16 og 17 ára unglingar þurft að greiða fyrir sundferðir.

Til að tryggja öryggi og betra yfirlit verður jafnframt tekin upp skráning barna og ungmenna. Börn 10 ára og eldri mega fara ein í sund, en þurfa að vera skráð og með aðgangskort. Í boði er plastkort eða stafrænt kort í síma. Gefa þarf upp kennitölu þegar sótt er um aðgangskort í afgreiðslu sundstaða.

Reykjavíkurborg greiðir kostnað vegna fyrsta aðgangskorts og árgjalds fyrir 10–17 ára reykvísk ungmenni, þannig að þau bera ekki kostnað af sundferðum sínum. Fyrir aðra gesti gildir uppfærð gjaldskrá.

Samhliða breytingunum lækkar verð á árskortum og nýjar áskriftarleiðir verða í boði, bæði í sundlaugum, á Ylströndinni og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, sem gera reglulegum gestum kleift að nýta þjónustuna á hagkvæman hátt.

Gestir eru hvattir til að kynna sér nýja gjaldskrá og fyrirkomulag aðgangs nánar á heimasíðu Reykjavíkurborgar eða hjá starfsfólki í afgreiðslu.