Útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn í Laugardal
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn í Laugardal

Meirihlutinn í borgarstjórn, Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur ásamt Miðflokki hefur samþykkt að fela menningar- og íþróttasviði í samráði við fjármála- og áhættustýringasvið að kortleggja rekstur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins (FoH) og kanna tækifæri til að útvista rekstri garðsins, í heild eða að hluta. 

Húsdýragarðurinn var opnaður árið 1990 og Fjölskyldugarðurinn árið 1993. Fræðsla hefur frá upphafi verið einn af hornsteinum starfseminnar. Þar gefst börnum meðal annars tækifæri til að kynnast íslenskum húsdýrum, dýralífi og náttúru með beinum hætti og læra um umhverfi dýranna, þarfir þeirra og tengsl manns og náttúru. 

Leikskólabörn í heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Leikskólabörn í heimsókn í Húsdýragarðinum.

Garðurinn er ein af verðmætum almennings- og útivistareignum Reykjavíkurborgar og gegnir því mikilvægu hlutverki í fræðslustarfi leik- og grunnskóla. Hann er staðsettur í hjarta borgarinnar Laugardalnum og er vinsæll áfangastaður fjölskyldna allt árið um kring. Það er mikilvægt að standa vörð um þetta hlutverk og þau verðmæti sem garðurinn skapar fyrir borgarbúa.

Ný tækifæri til frekari uppbyggingar

Meirihlutinn í borgarstjórn telur eðlilegt að Reykjavíkurborg leiti leiða til að efla starfsemina í FoH og auka aðdráttarafl hans. Tækifæri til frekari uppbyggingar, þróunar og eflingar eru mikil. 

Hringekjan í garðinum
Hringekjan er vinsæl í Fjölskyldugarðinum.

Kanna mætti hvort samstarf við einkaaðila gæti skapað ný tækifæri til uppbyggingar, aukið fjölbreytni þjónustunnar og gert garðinn enn áhugaverðari áfangastað. Þar gætu meðal annars falist tækifæri til að efla veitinga- og verslunarstarfsemi, þróa nýja afþreyingu, fjölga viðburðum og bæta upplifun gesta. Slíkir aðilar gætu hugsanlega lagt til nýja þekkingu og sýn, rekstrarreynslu, hugmyndir og fjármagn sem stuðlað gæti að öflugri starfsemi. Í þessu samhengi er mikilvægt að skoða fleiri en einn möguleika.

 Annars vegar mætti kanna hvort skynsamlegt sé að fela utanaðkomandi aðilum afmarkaða þætti starfseminnar. Hins vegar mætti kanna hvort markaðsaðilar hafi áhuga á víðtækara samstarfi um rekstur og þróun garðsins. Við mat á framtíðarfyrirkomulagi FoH er mikilvægt að fá heildstæða mynd af rekstrinum.

Með því að kortleggja hann skapast grundvöllur fyrir upplýsta ákvörðun um hvaða rekstrarfyrirkomulag þjóni best hagsmunum borgarinnar til framtíðar. 

Borgarfulltrúar Samfylkingar sátu hjá við atkvæðagreiðslu málsins. Sósíalistaflokkurinn og Vinstrið greiddu atkvæði gegn tillögunni.

Sjá nánar tillögu um Fjölskyldu- og húsdýragarð