Úrslit borgarstjórnarkosninga - upplýsingar um útstrikanir og breytingar á röð frambjóðenda

Horft yfir Ráðhús Reykjavíkur á fögrum vordegi
Horft yfir Ráðhús Reykjavíkur frá Tjarnargötu

 

Yfirkjörstjórn Reykjavíkur

Reykjavík, 17.05.26

Yfirkjörstjórn Reykjavíkur hefur í dag lokið yfirferð sinni yfir breytta atkvæðaseðla og undirbúið yfirlýsingu um kosningaúrslit og kosningaskýrslu til Landskjörstjórnar, samanber 119.gr. a. kosningalaga. Við yfirferðina kom í ljós misræmi á milli lesinna talna á kjörfundi og talinna atkvæða sem helgaðist af mistökum í innslætti í talningarskjal. Talningarskjalið tilgreindi fleiri atkvæði en greidd höfðu verið.

Í lesnum tölum var sagt að heildarfjöldi atkvæða væri 71.996 þegar atkvæði voru í raun 70.996 talsins. Í lesnum tölum var því sagt að M-listi Miðflokksins hefði fengið 8.912 atkvæði á meðan rétt atkvæði listans voru 7.912. Þar sem atkvæðin voru aldrei til, varð engin tilfærsla yfir á önnur framboð í kjölfar leiðréttingar. Um einfalda talnaleiðréttingu var að ræða auk þess sem misræmið breytir engu um fjölda fulltrúa hvers lista eða úthlutun sæta í borgarstjórn.

Endanleg niðurstaða borgarstjórnarkosninga sem fram fóru 16. maí 2026 er eftirfarandi:

Lokatölur

A-listi Vinstrisins 6.649

B-listi Framsóknarflokksins 4.805

C-listi Viðreisnar 7.436

D-listi Sjálfstæðisflokksins 22.930

F-listi Flokks fólksins 2.319

G-listi Góða dagsins 361

J-listi Sósíalistaflokks Íslands 2.858

M-listi Miðflokksins 7.912

P-listi Pírata 1.348

R-listi Okkar borgar 306

S-listi Samfylkingarinnar 12.737

Auðir 1.107

Ógildir 228

Samtals 70.996

Á kjörskrá 108.518

Heildarkjörsókn 65,40%

Niðurstaða um útstrikanir eða aðrar breytingar á framboðslista kjörinna aðalfulltrúa í borgarstjórn er sem hér segir:

A-listi, Vinstrið

1. Sanna Magdalena Mörtudóttir - 10

2. Líf Magneudóttir -151

B-listi Framsóknarflokkurinn

1. Einar Þorsteinsson - 34

C-listi Viðreisn

1. Björg Magnúsdóttir - 62

2. Róbert Ragnarsson - 22

D-listi Sjálfstæðisflokkurinn

1. Hildur Björnsdóttir - 40

2. Bjarni Eggerts Guðjónsson - 143

3. Brynjar Níelsson - 368

4. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir - 28

5. Rúnar Freyr Gíslason - 147

6. Guðný María Jóhannsdóttir - 10

7. Albert Guðmundsson - 38

8. Bjarni Fritzson - 37

9. Sigrún Ásta Einarsdóttir - 10

M-listi Miðflokkurinn

1. Ari Edwald - 77

2. Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir - 15

3. Lárus Sigurðsson - 14

S-listi Samfylkingin - jafnaðarflokkur Íslands

1. Pétur Hafliði Marteinsson - 150

2. Heiða Björg Hilmisdóttir - 1.161

3. Steinunn Guðjónsdóttir - 27

4. Skúli Helgason - 197

5. Stein Olav Romslo - 21

Útstrikanir eða breytingar hafa ekki áhrif á úthlutun sæta.

32 utankjörfundaatkvæði með listabókstafnum V

Í kosningunum voru 32 utankjörfundaratkvæði með listabókstafnum V úrskurðuð ógild. V er listabókstafur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem bauð ekki fram lista í Reykjavík en stóð að framboðslista Vinstrisins undir listabókstafnum A. 

Yfirkjörstjórn taldi vilja kjósanda ekki það skýran að ráða mætti með vissu að vilji þessara kjósenda væri að greiða framboðslista Vinstrisins atkvæði sitt. Áheyrnarfulltrúar Vinstri grænna og Sósíalistaflokks Íslands töldu hins vegar að meta ætti atkvæðin gild í ljósi þess að um kosningabandalag væri að ræða. 

Yfirkjörstjórn telur ástæðu til þess að taka undir ábendingar áheyrnarfulltrúa í tengslum við þessi vafaatkvæði og telur að skýra þurfi kosningalög í tengslum við kosningabandalög þar með talið ef stjórnmálasamtök bjóða fram sameiginlega framboðslista.

Hvetja til breytinga á kosningalögum

Þá telur yfirkjörstjórn að síðustu rétt í ljósi reynslu af kosningunum að athugað verði hvort tilefni sé til þess að breyta kosningalögum þannig að heimilt sé að hefja talningu atkvæða fyrr.