Uppfærsla ljósastýringar - Miklabraut-Klambratún og Miklabraut-Stakkahlíð - tímabundnar truflanir á umferð
Reykjavíkurborg og Vegagerðin munu á næstu dögum vinna að uppfærslu á umferðarljósastýringu á gatnamótunum Miklubraut–Klambratún á miðvikudag og Miklubraut–Stakkahlíð á fimmtudag. Markmiðið er að bæta umferðaröryggi á götum borgarinnar
Uppfærsla ljósastýringarinnar er liður í áframhaldandi vinnu við að bæta umferðaröryggi á götum borgarinnar. Á meðan á framkvæmdum stendur má gera ráð fyrir tímabundnum truflunum á umferðarljósum og mögulegum frávikum frá hefðbundinni stýringu.
Áætlaður framkvæmdatími er miðvikudagurinn 16. september 2026 og fimmtudagurinn 17. september 2026.
Slökkt verður á umferðarljósunum í um það bil fjórar klukkustundir á hvorum degi meðan á framkvæmdum stendur.
Slökkt verður á umferðarljósunum klukkan 21:00 á miðvikudag við gatnamótin Miklabraut–Klambratún og á sama tíma á fimmtudag við gatnamótin Miklabraut-Stakkahlíð.
Ef allt gengur samkvæmt áætlun verður framkvæmdatíminn styttri.Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát, fylgja leiðbeiningum á staðnum og gera ráð fyrir mögulegum töfum þegar ekið er um svæðið.
Við þökkum fyrir sýndan skilning og þolinmæði á meðan unnið er að þessum nauðsynlegu endurbótum til að bæta umferðaröryggi og umferðarflæði.