Undirritun samkomulags við Gróðrarstöðina Mörk
Í dag var undirritað samkomulag Reykjavíkurborgar og Gróðrarstöðvarinnar Markar sem tryggir áframhaldandi starfsemi hennar í Stjörnugróf 18 að hluta.
Samningurinn var undirritaður af Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra og eigendum Gróðrarstöðvarinnar Markar þeim Guðmundi Vernharðssyni og Sigríði Helgu Sigurðardóttur á heimili þeirra í Stjörnugróf.
Samkomulag Reykjavíkurborgar og Gróðrarstöðvarinnar Markar felur í sér afnotasamning fyrirtækisins til 2050 en um leið þarf Gróðrarstöðin Mörk að skila hluta af lóðinni í tvennu lagi, fyrst í lok þessa árs og svo aftur 2032.
Gróðrarstöðin Mörk heldur um það bil helmingi lóðarinnar eftir þann tíma til 2050 sem tryggir áframhaldandi starfsemi fyrirtækisins.