Tuttugu og einn útskrifast sem leikskólakennari

Hópmynd tekin af viðstöddum í móttökunni.

21 starfsmaður í leikskólum Reykjavíkur hefur útskrifast sem leikskólakennarar frá því í október í fyrra sem er afar mikilvægt fyrir fagstarf í leikskólum borgarinnar. Starfsfólk skrifstofu leikskólamála á skóla- og frístundasviði bauð þeim til móttöku nú í júní til að fagna áfanganum.

Mynd tekin við ræðupúlt í viðhöfninni.

Mikilvægt fyrir fagstarf í leikskólum

Þetta er mikilvægur áfangi bæði fyrir kennarana sjálfa og fyrir leikskólastarf borgarinnar, þar sem vel menntaðir fagmenn skipta sköpum fyrir gæði starfsins. Nýju leikskólakennararnir starfa í alls 17 leikskólum víðs vegar um borgina. 

Mynd tekin yfir salinn.

Fengu táknrænan birkigræðling að gjöf

Við athöfnina afhentu fagstjórar hverjum og einum kennara birkigræðling að gjöf. Græðlingurinn er táknrænn og er ætlað að minna á mikilvægi þess að hlúa að vexti og þroska – bæði plantna og barna. Með gjöfinni fylgja óskir um að nýju leikskólakennararnir dafni í starfi sínu og vaxi líkt og tréð sem þeir planta. Reykjavíkurborg óskar þeim áframhaldandi farsældar í mikilvægu hlutverki sínu.