Tíu milljónum varið til eflingar tónleikastaða auk stuðnings við æfingaaðstöðu

Róbert Reynisson
Fólk á tónleikum, nærmynd, dimmt, sirka tíu manns

Úrbótasjóður tónleikastaða verður endurreistur og tíu milljónum króna varið til sjóðsins til úthlutunar á þessu ári. Markmiðið er að efla tónleikastaði í miðborginni. Þá verður tveimur milljónum varið í að byggja upp æfingaaðstöðu við Hlemm fyrir tólf til átján hljómsveitir.

Spretthópur um lifandi tónlistarflutning í Reykjavík skilaði aðgerðatillögum 27. febrúar síðastliðinn. Hópnum var ætlað að meta stöðu lifandi tónlistarflutnings í borginni og leggja fram tillögur að bættri aðstöðu til tónleikahalds; tónlistarfólki, tónleikastöðum, almenningi og ferðafólki til heilla. Niðurstöður sýna að tónleikastaðir glíma við kerfislægan rekstrarvanda og telur spretthópurinn aðstöðu til lifandi tónlistarflutnings í miðborg Reykjavíkur kalla á aðgerðir svo áhrif núverandi stöðu setji ekki svip sinn á næstu áratugi íslensks tónlistarlífs. Mikilvægt sé að auka sýnileika og aðgengi lifandi tónlistar. Með markvissum aðgerðum megi snúa þróuninni við og styrkja stöðu íslenskrar tónlistar.

Langvarandi og kröftug áhrif

Spretthópurinn skilaði fjórum aðgerðatillögum og fól ein þeirra í sér að endurvekja úrbótasjóð tónleikastaða. Úrbótasjóður starfaði á árunum 2020 til 2022 við góðar undirtektir, en hlutverk hans var að styðja við tilvist minni og miðlungsstórra tónleikastaða í Reykjavík sem og menningarhús sem sinntu lifandi tónlistarflutningi. Styrkir úr úrbótasjóði hafa haft langvarandi og kröftug áhrif og á fundi menningar- og íþróttaráðs þann 10. apríl síðastliðinn var samþykkt að endurvekja sjóðinn og verja til hans tíu milljónum króna til úthlutunar á þessu ári.

Öðrum tillögum spretthópsins verður vísað til borgarráðs en þær fólu meðal annars í sér einföldun leyfisveitingaferlis tónleikastaða og að tónleikastaðir yrðu viðurkenndir sem mikilvægir menningarlegir innviðir.

Tónlistarborgin styður uppbyggingu æfingaraðstöðu í Hlemmur.Haus

Tónlistarborgin Reykjavík hyggst einnig styðja við Hafnarhaus í uppbyggingu æfingarrýma í húsnæði að Laugavegi 114–116, svonefndu Hlemmur.Haus.

Rýmið mun hýsa fjögur æfingarrými fyrir 12 til 18 hljómsveitir tónlistarfólks á aldrinum 15–30 ára. Þar verður jafnframt sameiginleg aðstaða með sviði og upptökuveri. Staðsetningin við Hlemm er afar hentug, þar sem samgöngur eru góðar og hljómsveitir munu starfa í skapandi og listrænu umhverfi. Á efri hæðum hússins er vinnuaðstaða fjölda listamanna, auk þess sem Myndlistarskólinn í Reykjavík er staðsettur í næsta nágrenni. 

Tónlistarborgin hefur undanfarið ár unnið að áherslubreytingum í verkefnum sínum í takt við þarfir tónlistarsamfélagsins. Skortur hefur verið á aðstöðu til æfinga og lifandi tónlistarflutnings og því hefur Tónlistarborgin fært stuðning frá verkefnum sem komin eru vel á veg, til verkefna sem tengjast beint æfingaaðstöðu og lifandi tónlistarflutningi, þar sem þörfin er brýn. 

Skortur á æfingaaðstöðu fyrir ungt fólk

Tónlistarborgin tekur fram að stuðningur við æfingaraðstöðu í Hafnarhaus er alfarið ótengdur aðgerðum sem tengjast Tónlistarþróunarmiðstöð (TÞM). Stuðningurinn við Hafnarhaus kemur úr fjárhagsramma Tónlistarborgarinnar, alls tvær milljónir króna og er mögulegur vegna framangreindra tilfærslna og áherslubreytinga. Stuðningur við verkefnið gæti skipt sköpum, enda er verulegur skortur á æfingaaðstöðu fyrir ungt tónlistarfólk í Reykjavík. Með uppbyggingu æfingarýma í Hafnarhaus, samhliða áframhaldandi þróun Tónlistarþróunarmiðstöðvar, yrði staða Reykjavíkurborgar til muna sterkari hvað varðar aðstöðu fyrir tónlistarfólk — í borg sem listafólk vill búa og starfa í.

Hlemmur.Haus. Mynd tekin skáhallt að húsinu, hvítur himinn, stéttin fyrir utan í forgrunni.
Hlemmur.Haus.