Reykjavík styrkir stöðu tónleikastaða og lifandi tónlistar
Menningar- og íþróttaráð Reykjavíkurborgar samþykkti einróma 27. febrúar að færa í innleiðingarfasa aðgerðartillögur um eflingu tónleikastaða í borginni. Tillögurnar voru unnar af spretthópi sem leiddur var af Tónlistarborginni Reykjavík í nánu samstarfi við SST (samtök smærri tónleikastaða).
Markmið tillagnanna er að stuðla að bættri aðstöðu til lifandi tónlistarflutnings og styrkja menningarlega innviði borgarinnar til hagsbóta fyrir tónlistarfólk, tónleikastaði, íbúa og gesti Reykjavíkur. Meðal aðgerða er að viðurkenna tónleikastaði formlega sem mikilvæga menningarinnviði, endurvekja úrbótasjóð til að styðja við þróun og aðstöðu tónleikastaða, einfalda leyfisveitingar og auðvelda viðburðahald í tengslum við stóra hátíðardaga á sumrin.
Samhliða aðgerðunum hefur Reykjavíkurborg gert samning við Rannsóknarsetur skapandi greina til þriggja ára um kortlagningu og úttekt á tónleikastöðum borgarinnar með tilliti til leiguumhverfis, verðbólgu og áhrifa af ferðaþjónustu. Niðurstöður þeirrar úttektar munu liggja fyrir vorið 2026 og er ætlað að styðja við stefnumótun borgarinnar í málaflokknum til framtíðar. Jafnframt mun Rannsóknarsetrið framkvæmda örkannanir meðal reykvískra tónleikastaða í janúar ár hvert á gildistíma samningsins.
Reykjavík hefur lengi verið þekkt sem kraftmikil tónlistarborg þar sem íslensk tónlist nýtur alþjóðlegrar athygli. Smærri tónleikastaðir gegna lykilhlutverki í þeirri þróun; þar stíga nýir listamenn sín fyrstu skref og tónlistarsenan dafnar.
Aðgerðirnar eru liður í því að tryggja að Reykjavík haldi áfram að vera lifandi og aðlaðandi tónlistarborg þar sem tónlistarmenning blómstrar og er sýnileg bæði íbúum og gestum.