Tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2026
Í dag voru tilkynntar tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar árið 2026.
Skúli Þór Helgason, formaður menningar- og íþróttaráðs veitti tilnefningarnar en alls eru fimm bækur tilnefndar í þremur flokkum. Athöfnin fór fram í Mengi við Óðinsgötu.
Eftirtalin verk voru tilnefnd að þessu sinni:
Frumsamin skáldverk
Blaka, eftir Rán Flygenring, útgefandi: Angústúra
Efri hæðin eftir Jón Lorange, útgefandi: Landasonur
Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, útgefandi: Forlagið / Mál og menning
Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson, útgefandi: Forlagið / Mál og menning
Torf, grjót og burnirót eftir Sigrúnu Eldjárn, útgefandi: Forlagið/Mál og menning
Myndlýsingar
Árstíðarverur, myndlýst af Lynn Janssen, útgefandi: Salka
Ég bý í risalandi, myndlýst af Birnu Daníelsdóttur, útgefandi: Forlagið
Hjartslátturinn hennar Lóu, myndlýst af Lilju Cardew, útgefandi: Bókabeitan
Njála hin skamma, myndlýst af Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur, útgefandi: Bókabeitan
Við, myndlýst af Fanny Sissoko, útgefandi: Karíba
Þýðingar
Sól rís á sláttudegi, íslensk þýðing eftir Magneu J. Matthíasdóttur, útgefandi: Forlagið
Undrarútan, íslensk þýðing eftir Jón St. Kristjánsson, útgefandi: Forlagið
Ferðataskan, íslensk þýðing eftir Ástu Halldóru Ólafsdóttur, útgefandi: Kvistur
Versta vika sögunnar, íslensk þýðing eftir Kristján B. Jónasson, útgefandi: Drápa
Týr, íslensk þýðing eftir Sigríði Ástu Árnadóttur, útgefandi: Forlagið/Mál og menning
Í dómnefnd sátu Sigrún Margrét Guðmundsdóttir formaður, skipuð af Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Salka Guðmundsdóttir, skipuð af Rithöfundasambandi Íslands og Halldór Baldursson, skipaður af Félagi íslenskra teiknara.
Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar verða veitt við hátíðlega athöfn í Höfða, þann 22. apríl og mun Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri afhenda verðlaunin.