Tilkynning vegna lokana í Laugardalslaug
Tekin hefur verið ákvörðun um að færa alla starfsemi úr stúkunni við Laugardalslaug og loka fimm heitum pottum sem næst henni eru af öryggisástæðum. Stúkan, sem reist var árið 1968, hefur verið lokuð almenningi undanfarin ár og aukið eftirlit verið með ástandi hennar.
Nýtt áhættumat
Nýtt áhættumat vegna mannvirkisins liggur nú fyrir en ástand þess er mjög bágborið sökum alkalí- og tæringarskemmda í steypu og burðarvirki. Niðurstaða áhættumatsins er afdráttarlaus og kallar á tafarlausa lokun skilgreindra svæða.
Heitu pottunum fimm sunnan stúkumannvirkisins, eimbaðinu og tveimur sérklefum af fjórum verður lokað frá og með deginum í dag í ófyrirséðan tíma. Öll þjónusta og viðvera innan stúkumannvirkisins verður færð annað og öll umferð umhverfis stúkumannvirkið verður takmörkuð. Önnur starfsemi Laugardalslaugar verður með óbreyttum hætti.
Vert er að taka fram að úttektir benda ekki til þess að heildarhrun mannvirkisins sé yfirvofandi. Engu að síður eru metnar líkur á því að brotnað geti úr því.
Fyrstu aðgerðir snúa að því að tryggja öryggi kringum stúkumannvirkið. Samhliða er verið að undirbúa niðurrif á þeim byggingarhlutum sem taldir eru skapa áhættu í samráði við ráðgjafa. Betur verður greint frá framvindu verkefnisins eftir sem því vindur fram.