Tilkynning vegna leikskólans Sæborgar

Mynd af leikskólanum Sæborg.

Vegna fyrirhugaðra framkvæmda í leikskólanum Sæborg við Starhaga 11 var ekki innritað í pláss sem losna vegna skólagöngu elstu barna leikskólans í haust í aðalinnritun leikskóla fyrir haustið 2026.

Framkvæmdum seinkað

Nú hefur verið ákveðið að seinka framkvæmdum og því verður hægt að bjóða í þau pláss sem losna í leikskólanum. Þeir sem hefðu viljað sækja um Sæborg í aðalinnrituninni en breyttu vali sínu og fengu boð í annan leikskóla er því boðið að senda póst á innritun.leikskolar@reykjavik.is ef óskað er eftir að sækja um Sæborg.

Beiðni um breytingu á umsókn um leikskóla þarf að berast fyrir 30. apríl næstkomandi. Boðið verður í laus pláss eftir reglum um leikskólaþjónustu og er innritað eftir kennitöluröð, elsta barnið fyrst, eins og pláss leyfir. 

Beiðnir vegna barna sem áttu umsóknir fyrir aðalinnritun, sem hófst 2. mars síðastliðinn, verða afgreiddar á undan umsóknum sem bárust á meðan úthlutun stóð yfir og voru frystar eða bárust eftir að frystingu var aflétt af biðlista 15. apríl síðastliðinn. Losni pláss í öðrum leikskólum af þessum orsökum verða send boð um pláss til samræmis við reglur um leikskólaþjónustu.