Sundhöll Reykjavíkur hefur opnað aftur eftir viðhaldslokun
Sundhöll Reykjavíkur opnaði aftur fimmtudaginn 25. júní kl. 13.00 eftir viðhaldslokun. Þó þarf að takmarka fjölda gesta tímabundið þar sem vinna við búningsklefa reyndist umfangsmeiri en fyrir varð séð og er enn yfirstandandi.
Til bráðabirgða munu karlar nota gamla klefann niðri og konur báða útiklefana. Þessir klefar rúma samtals um 60 gesti og verður miðað við þann hámarksfjölda í lauginni á meðan þessar ráðstafanir eru í gildi.
Önnur aðstaða er opin með hefðbundnum hætti og allt kapp verður lagt á að ljúka þeim framkvæmdum sem eftir standa og koma starfsemi Sundhallarinnar sem fyrst aftur í eðlilegt horf.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum gestum fyrir þolinmæði og skilning á meðan á viðhaldsvinnu stendur.
Við bendum jafnframt á að árskort og aðrar áskriftir gilda í allar Sundlaugar Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar um sundlaugar og opnunartíma.