Styttist í úthlutun leikskólaplássa fyrir haustið
Úthlutun leikskólaplássa fyrir haustið 2026 hefst í öllum leikskólum borgarinnar, borgarreknum og sjálfstætt starfandi, þann 2. mars næstkomandi. Að stærstum hluta er þeim plássum úthlutað sem losna þegar heill árgangur barna hefur grunnskólagöngu sem og þegar losnar um pláss á ungbarnaleikskólum vegna flutnings eldri barna í almenna leikskóla.
Allar umsóknir fara í gegnum Völu
Nokkrar vikur tekur að úthluta þeim plássum sem losna í haust og verður ekki hægt að gera breytingar á umsóknum meðan á því tímabili stendur, 2. mars - 15. apríl. Umsóknir um leikskóladvöl þurfa að berast í gegnum Völu, hvort heldur umsóknir í borgarrekna leikskóla eða sjálfstætt starfandi leikskóla.
Eins og áður velja foreldrar þann leikskóla sem þeir vilja helst númer eitt og aðra skóla þar á eftir, allt að sjö leikskóla. Við úthlutun plássa er farið eftir aldri barna og er næst athugað hvort pláss fáist í þeim leikskóla sem er efstur á blaði, og svo koll af kolli. Í þessum fyrsta og stærsta áfanga úthlutunarinnar er unnið með umsóknir barna sem fædd eru í febrúar 2025 og fyrr. Undantekningar frá kennitöluröð eru börn sem hafa fengið samþykktan forgang í leikskóla, til dæmis vegna fötlunar eða félagslegra aðstæðna.
Í sjálfstætt starfandi leikskólum gilda almennt sömu reglur um röðun á biðlista og í borgarreknum leikskólum, sjá í reglum um leikskólaþjónustu.
Mikilvægt er að foreldrar og þau sem fara með forsjá barna yfirfari sína umsókn fyrir 2. mars. Ítarlegri fréttir og útskýringar verða birtar síðar í mánuðinum vegna úthlutunarinnar sem fram undan er og eru foreldrar og forráðafólk hvatt til að fylgjast með.