Starfsfólk Reykjavíkurborgar ánægt í starfi 

Ráðhús Reykjavíkur speglast í tjörninni.

Ný mannauðskönnun meðal starfsfólks Reykjavíkurborgar sýnir að 89% starfsfólks Reykjavíkurborgar er ánægt í starfi.

Niðurstöður sýna að á heildina litið upplifir starfsfólk Reykjavíkurborg sem góðan og metnaðarfullan vinnustað. Þar ríkir góður starfsandi og starfsfólk er ánægt með þann sveigjanleika sem það hefur í vinnunni. Þá segir 86% starfsfólks geta mælt með vinnustaðnum  við vini sína. 

Borgin tók þátt í könnuninni Stofnun ársins sem lögð var fyrir starfsfólk í nóvember og desember á síðasta ári. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana. Alls var könnunin send út til um 36 þúsund þátttakenda hjá ríkinu og Reykjavíkurborg og var svarhlutfall 64% hjá starfsfólki borgarinnar. 

Á heildina litið eru niðurstöður könnunarinnar mjög jákvæðar og er hækkun á öllum níu þáttum könnunarinnar fyrir borgina.  89% starfsfólks Reykjavíkurborgar líður vel í starfi, 92% telja að allt starfsfólk njóti jafnræðis óháð aldri, kyni, uppruna, kynhneigð,  trúar- eða lífsskoðunum og 88% starfsfólks segist vera stolt af starfsstaðnum sínum. Þá hefur dregið úr upplifun á álagi. 

Starfsfólk Reykjavíkurborgar virðist ánægt með stjórnun á sínum starfsstað en 84% starfsfólks telja að vinnustað sínum sé vel stjórnað og 85% segjast bera fullt traust til stjórnenda á sínum starfsstað og 86% segjast fá stuðning og hvatningu frá næsta yfirmanni. 

Reykjavíkurborg hefur mælt viðhorf starfsfólks til starfsumhverfis, samskipta og stjórnunarhátta reglulega frá árinu 2005 og nýtt niðurstöður markvisst til að skapa enn betra starfsumhverfi fyrir hæfileikaríkt og metnaðarfullt starfsfólk. Niðurstöður könnunarinnar sýna að aðgerðir hafa skilað árangri en áfram eru sóknarfæri til að nýta niðurstöðurnar. Framundan eru kynningar á starfsstöðum borgarinnar þar sem starfsfólki verða kynntar niðurstöður fyrir hvern starfsstað, markmið sett og unnar aðgerðaáætlanir.