Staða leikskóla í Reykjavík fyrir stóru innritunina 2026

Leikskólabörn að róla.

Ekki verður innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík á þessu ári vegna framkvæmda. Búist er við að 277 ný leikskólapláss verði í boði á árinu sem koma á móti þeim 169 plássum sem detta út vegna framkvæmda og viðhalds. Mikilvægt er að foreldrar yfirfari leikskólaumsóknir fyrir 2. mars 2026.

Úthlutun leikskólaplássa í Reykjavík fyrir haustið 2026 hefst 2. mars næstkomandi. Plássum er úthlutað í kennitöluröð, þar sem elstu börnin fá boð fyrst, í þá skóla sem foreldrar völdu í umsókninni.

Vegna framkvæmda verður ekki innritað í eftirfarandi leikskóla:

  • Hagaborg
  • Sæborg
  • Borg
  • Vinagerði 

Stefnt að fjölgun leikskólaplássa um 119 á árinu

Á móti þeim 169 leikskólaplássum sem ekki verður hægt að nýta vegna framkvæmda og viðhalds á árinu er búist við að ellefu verði komin til baka strax í haust. 

Þá er gert ráð fyrir að hægt verði að bjóða 277 ný leikskólapláss á árinu. Af þeim eru 25 í Klettaborg þegar tilbúin, en einnig eiga eftir að bætast við pláss á leikskólunum Árborg, Brákarborg, Hulduheimum, Seljaborg og svo bætist við nýr leikskóli við Rafstöðvaveg.

Staða framkvæmda þar sem boðið verður upp á ný leikskólapláss:

  • Viðbyggingin við Hulduheima er langt komin og á frágangi lóðar að ljúka í sumar.
  • Viðbótarhús og tengibygging sem flutt verður á lóð Seljaborgar í mars er í smíðum og á frágangi lóðar að ljúka í vor.
  • Starfsemi mun hefjast að nýju í Brákarborg við Kleppsveg í apríl.
  • Húsnæði Árborgar hefur verið í viðamikilli endurnýjun sem á að ljúka í lok sumars. Á sama tíma verður viðbótarhús á lóð Árborgar afhent og hægt að hefja undirbúning fyrir leikskólastarf.
  • Einingar fyrir leikskólann við Rafstöðvaveg eru væntanlegar til landsins í maí og að húsið verði risið í september samkvæmt núverandi áætlun. Gangi það eftir á starfsemi að geta hafist í lok árs 2026.

Mikil fjölgun leikskólaplássa 2027

Gert er ráð fyrir að um mitt ár 2027 verði búið að fjölga leikskólaplássum í Reykjavík um 372 á eftirfarandi stöðum:

  • Nýr leikskóli á Fossvogsbletti
  • Viðbótarhús á lóð Vesturborgar
  • Viðbótarhús á lóð Grandaborgar
  • Viðbótarhús á lóð Jörfa
  • Viðbótarhús á lóð Maríuborgar
  • Viðbótarhús á lóð Hólaborgar

Vert er að taka fram að alltaf mun taka einhvern tíma að ráða í allar lausar stöður og ákveðinn stígandi þarf að vera í innritun nýrra plássa. 

Hagaborg flytur í Grandaborg

Ákveðið hefur verið að færa starfsemi Hagaborgar í nýuppgert húsnæði Grandaborgar við Boðagranda í lok febrúar. Með því kemst starfsemi Hagaborgar sem nú er á þremur stöðum undir eitt þak. Ljóst er að viðhaldsframkvæmdir á húsnæði Hagaborgar verða umfangsmiklar og þarf að loka leikskólanum tímabundið frá og með 1. september næstkomandi. Því verður ekki innritað í Hagaborg fyrir næsta skólaár en innritað verður í Grandaborg.

Öll börn sem eru með vistun í Hagaborg færast sjálfkrafa yfir í Grandaborg og sömuleiðis býðst öllu starfsfólki Hagaborgar að gera slíkt hið sama. Börnin í Hagaborg sem eru á elsta ári fara yfir í grunnskóla og munu þá pláss losna sem verður úthlutað í Grandaborg í stóru innrituninni sem er fram undan.

Stækkun í Sæborg og ekki innritað í pláss sem losna

Í Sæborg þarf að fækka plássum á meðan unnið verður að stækkun leikskólans og því verður ekki innritað í Sæborg fyrir haustið. Mikilvægt er að þau sem hafa sett leikskólann í val breyti umsóknum sínum á Vala.is fyrir 2. mars.

Framkvæmdir í Borg koma í veg fyrir innritun

Vegna flutnings starfsemi Borgar/Arnarborgar í Ármúla og viðhaldsframkvæmda við Borg/Fálkaborg verður ekki innritað í leikskólann Borg haustið 2026. Foreldrar eru hvattir til að velja aðra leikskóla og uppfæra umsóknir sínar á vala.is fyrir 2. mars.

Vinagerði verður lokað

Ekki verður innritað í leikskólann Vinagerði vegna ástands húsnæðisins og hefur því verið lokað. Starfsemin er sem stendur í Safamýri 5 en börnin þar fá flutning í aðra leikskóla í stóru innrituninni fram undan.

Öll sem hafa valið Vinagerði, Hagaborg, Sæborg eða Borg í umsókn um leikskólapláss eða beðið um flutning þangað þurfa að breyta umsóknum sínum. Ef einhverjar spurningar vakna hafið samband við innritun.leikskolar@reykjavik.is.