Sólbaðssvalirnar í Sundhöll Reykjavíkur opna aftur

Sundhöll Reykjavíkur

Vestari sólbaðssvalir Sundhallar Reykjavíkur, verða opnaðar aftur á morgun miðvikudaginn 20. maí klukkan 12:00.

Vestari sólbaðssvalirnar hafa verið lokaðar frá því 2024. Austari svalirnar verða opnaðar eftir viðhaldslokun í júní.

Sólbaðsaðstaðan í Sundhöll Reykjavíkur
Sólbaðsaðstaðan í Sundhöll Reykjavíkur

Ráðist hefur verið í viðhald og endurbætur á svölunum til að bæta bæði öryggi og upplifun gesta. Aðstaðan hefur verið yfirfarin og endurnýjuð með það að markmiði að skapa notalegt og öruggt umhverfi fyrir laugargesti.

„Við hlökkum mikið til að taka aftur á móti gestum á svalirnar og vonumst til að veðrið leiki við laugargesti í sumar,“ segir Snorri Örn Arnaldsson forstöðumaður Sundhallar Reykjavíkur.

Svalirnar verða opnar alla daga frá kl. 10:00 til 19:00. Svölunum var áður skipt í karla- og kvennasvalir, en héðan í frá verða þær fyrir öll kyn. 

Gestir eru minntir á handklæðaskyldu á sólbaðsbekkjum og að allar öryggis- og umgengnisreglur gilda á svölunum líkt og annars staðar í sundlaugum Reykjavíkur.