Snjöll sorphirða

Starfsmenn sorphirðu Reykjavíkur við störf
Starfsmenn sorphirðu Reykjavíkur við störf

Reykjavíkurborg vinnur að því að merkja sorptunnur í eigu borgarinnar með örflögum og límmiðum til að bæta þjónustu.

Markmið verkefnisins er að bæta skráningu og utanumhald tunna, auðvelda yfirsýn yfir fjölda þeirra, tegundir og staðsetningu og styðja við betri þjónustu.

Örflaga á sorptunnu
Gul örflaga á sorptunnu, 

Hver tunna fær örflögu með einstöku auðkenni sem tengir hana við upplýsingar eins og heimilisfang, úrgangsflokk og stærð. Örflögurnar eru fyrst og fremst notaðar til að auðkenna tunnur og halda utan um eignir borgarinnar. Til framtíðar geta þær einnig nýst til að bæta upplýsingagjöf til íbúa, til dæmis ef ekki reynist mögulegt að losa tunnu á reglulegum losunardegi.

Hvítur límmiði sem búið er að koma fyrir á sorptunnu
Límmiði á sorptunnu með QR kóða.

Á bakhlið tunnunnar verður einnig límmiði með sömu upplýsingum. Ef fleiri en eitt heimilisfang deilir sömu tunnu kemur það fram á límmiðanum. Á límmiðanum er QR-kóði sem vísar á síðu sorphirðu Reykjavíkurborgar. Þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar um verkefnið, sorphirðudagatal og senda inn þjónustubeiðnir ef þörf krefur.