Skrekkur á næsta leiti

Mynd af atriði í Skrekk

Undanúrslit Skrekks fara fram dagana 9., 10. og 11. nóvember í Borgarleikhúsinu. Í Skrekk fá unglingar í grunnskólum Reykjavíkur að vinna með hugmyndir sínar og þróa sviðsverk fyrir stóra svið Borgarleikhússins fyrir hönd síns skóla. Að þessu sinni taka 793 ungmenni frá 26 skólum þátt. Atriði frá átta skólum munu komast í úrslit sem fara fram 16. nóvember.

Fjölbreytt atriði um hugarefni ungmenna

Atriðin í ár fjalla meðal annars um kvennabaráttu, jafnrétti, glímu við geðraskanir, hvernig fullorðnir eigi það til að dæma unglinga, líkamsímynd, mikilvægi hjálpsemi, erfiðar ákvarðanir, hraðtísku, sveitalíf, minningar, fjölbreytileika, mikilvægi þess að allir megi vera eins og þeir eru, sameiningu ólíkra menningarheima, nostalgíu, kvikmyndamaraþon, spilavíti, hraðtísku og ást.

Unglingarnir nýta allar sviðslistir í atriðin: tónlist, dans, leiklist og gjörninga sem þau semja sjálf og eru frumsamin lög í sumum atriðum. Unglingarnir sjá líka um tæknihliðina, búninga og förðun. Fullorðnir hafa það hlutverk að styðja við uppsetningu atriðanna.

Skrekkur er samstarfsverkefni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, grunnskóla og félagsmiðstöðva í Reykjavík, RÚV og Borgarleikhússins. Borgarstjóri mun afhenda fyrstu verðlaun á stóra sviði Borgarleikhússins á mánudaginn 16. nóvember.

Skrekkur fékk tilnefningu til Íslensku Menntaverðlaunanna 2022 sem framúrskarandi þróunarverkefni.

Skipting skóla eftir dögum:

Mánudaginn 9. nóvember koma fram: Réttarholtsskóli, Seljaskóli, Rimaskóli, Tjarnarskóli, Laugalækjarskóli, Breiðholtsskóli, Víkurskóli, Klébergsskóli.

Þriðjudaginn 10. nóvember koma fram: Ölduselsskóli, Fellaskóli, Langholtsskóli, Dalskóli, Vogaskóli, Landakotsskóli, Hólabrekkuskóli, Árbæjarskóli, Foldaskóli.

Miðvikudaginn 11. nóvember koma fram: Austurbæjarskóli, Háteigsskóli, Álftamýrarskóli, Korpuskóli, Sæmundarskóli, Ingunnarskóli, Hagaskóli, Norðlingaskóli, Hlíðaskóli.