Skólaskipi ætlað að efla tengsl barna við hafið
Grunnskólahluti á Vesturmiðstöð hefur tekið frumkvæði að nýju fræðsluverkefni um hafið og sjósókn. Á fundi sem haldinn var 26. febrúar komu saman rúmlega 40 fulltrúar skóla, stofnana og félagasamtaka til að hefja sameiginlega vegferð í átt að þessu nýja fræðsluverkefni.
Fundurinn markaði fyrsta skrefið í uppbyggingu Skólaskips, framtaks sem miðar að því að styrkja tengsl barna og ungmenna við hafið og gera það að öflugum hluta af námi og upplifun í skóla og frístundastarfi.
Nánd við hafið býður upp á tækifæri
Skólaskip er fræðsluverkefni um siglingar, hafið og sjósókn. Markmiðið er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að kynnast hafinu af eigin raun, sjá þau tækifæri sem nánd við hafið býður upp á og tengjast sterkari böndum náttúru, umhverfi, atvinnuháttum, menningararfi og vísindum.
Hugmyndin að verkefninu kviknaði upp úr því að þrátt fyrir að búa við hafið fá mörg börn lítil sem engin tækifæri til að vera nærri sjónum. Hafið og haftengd upplifun býður upp á fjölbreytta nálgun við skólastarf. Þátttakendur á fundinum voru sammála um að þarna væri mikilvægt tækifæri til náttúrutengsla, þekkingarsköpunar sem og samveru og félagstengsla í nærumhverfinu.
Slysavarnaskóli sjómanna meðal samstarfsaðila
Í aðdraganda fundarins var undirrituð viljayfirlýsing samstarfsaðila sem lýsir sameiginlegum vilja til að vinna áfram að verkefninu og móta framtíðarsýn þess. Meðal þeirra sem standa að viljayfirlýsingunni eru Hafrannsóknastofnun, Slysavarnaskóli sjómanna, Tækniskólinn, Miðstöð útivistar og útináms, Borgarsögusafn, Náttúruminjasafn Íslands, Menntavísindasvið HÍ og Faxaflóahafnir.
Markmið fundarins var að kalla saman breiðan hóp fólks til að kortleggja þá haftengdu fræðslu sem er starfrækt nú þegar, safna saman reynslu fyrri tíma og skoða hugmyndir sem ekki hafa verið framkvæmdar. Framtíðarsýn verkefnisins byggir á þessum grunni. Fjöldi aðila hefur sýnt verkefninu áhuga og vilji er til að skapa samráðsvettvang þar sem þekking og reynsla er sameinuð. Áhugasamir fundargestir leyfðu sér að dreyma um að verkefnið skili þeim ávinningi að á komandi árum fái börn á Íslandi aðgengi að haftengdri upplifun til að læra sem mest um hafið og kynnist þannig bakgarðinum okkar; hafinu.
Í næsta hluta verkefnisins verður meðal annars unnið að þróun verkefnabanka fyrir yngri nemendur og mótun valgreina á elsta stigi grunnskóla. Þessi vinna er á frumstigi og verður unnin áfram á næstu mánuðum í nánu samtali við skóla, sérfræðinga og aðra þátttakendur innanlands og utan.
Hagaskóli, Grandaskóli og Vesturbæjarskóli í samvinnu um verkefnabanka
Á fundinum ríkti einróma samstaða um mikilvægi þess að efla tengsl barna við hafið og nýta þann ómetanlega vettvang sem hafið býður til lærdóms og tengsla. Verkefnið mun halda áfram að þróast á næstu misserum með það að markmiði að fleiri skólar og aðilar í samfélaginu taki þátt. Nú þegar er samstarf við Grandaskóla um verkefnabanka um sjávarsíðuna, við Vesturbæjarskóla um skipin og við Hagaskóla um sjómennskuna.
Karna Sigurðardóttir er verkefnastjóri verkefnisins um Skólaskip. Hún mun stýra þróunarferlinu, móta inntak verkefnisins í náinni samvinnu við kennara og sérfræðinga og byggja upp samstarfsnet aðila sem vilja láta drauminn um Skólaskip rætast.