Skipulagsbreytingar og uppsagnir í Ráðhúsi Reykjavíkur
Borgarráð samþykkti í dag umfangsmiklar skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Tillögurnar eru liður í markmiðum stýrihóps meirihlutans um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Markmið breytinganna er að einfalda stjórnsýslu, stytta boðleiðir, draga úr yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur. Um leið verði staðið vörð um framlínuþjónustu.
Breytingarnar taka til skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, en undir skrifstofuna heyra jafnframt skrifstofa samskipta og viðburða og mannréttindaskrifstofa. Breytingarnar hafa áhrif á 27 stöðugildi af 42 á áðurnefndum skrifstofum. Níu störf verða færð milli sviða eða skrifstofa innan borgarinnar. Átján störf verða lögð niður en gert er ráð fyrir að ráðið verði í einhver ný störf eftir því sem innleiðingunni vindur fram auk þess sem verkefnum verður útvistað. Starfsfólki skrifstofunnar mun eftir að breytingar hafa að fullu komist til framkvæmda, hafa fækkað um minnst 40%. Um hópuppsögn er að ræða og hefur Vinnumálastofnun verið upplýst.
Áætlað er að þessar breytingar geti lækkað rekstrarkostnað borgarinnar um 280 til 330 milljónir króna á ársgrundvelli þegar innleiðingu skipulagsbreytinganna er að fullu lokið.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri:
„Ég hét því að gera breytingar og taka til hendinni í rekstri borgarinnar. Það er eðlilegt að ég horfi fyrst til þeirra verkefna sem standa mér næst í þeim efnum, hér á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Þessar ákvarðanir eru hvorki einfaldar né teknar af léttúð. Rekstur borgarinnar stendur hins vegar að óbreyttu ekki undir lögbundinni þjónustu, nauðsynlegum fjárfestingum og mikilvægu viðhaldi innviða. Þess vegna reynast þessar aðgerðir nauðsynlegar. Nýr meirihluti mun halda áfram að velta við öllum steinum til að ná fram markmiðum okkar um hagræðingu og bætta þjónustu við íbúa“, segir Hildur.
Samhliða þessum breytingum verður skerpt á ráðningarbanni og viðveruskyldu innan miðlægrar stjórnsýslu, auk þess sem dregið verður úr ferðalögum borgarstarfsmanna og innleitt nýtt verklag þar sem ferðaheimildir skulu samþykktar af skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.
Gert er ráð fyrir að ofangreindar breytingar taki gildi frá og með 1. júlí nk. Á næstu vikum og mánuðum munu frekari tillögur er snúa að öðrum þáttum í rekstri borgarinnar verða kynntar af hagræðingarhópi borgarstjóra sem er að störfum.
Nánar um helstu skipulagsbreytingar
Stefnumótunar- og þróunarteymi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara verður lagt niður og helstu verkefnum á borð við rannsóknarþjónustu, verkefnastýringu lýðheilsumála og Græna plani verður hætt. Atvinnuþróun mun færast til umhverfis- og skipulagssviðs og ytri nýsköpun til þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Verkefni á borð við samhæfingu stefnumótunar, persónuvernd og alþjóðamál verða áfram á skrifstofunni en með breyttum áherslum.
Skrifstofa samskipta og viðburða verður lögð niður og mun viðburðateymi borgarinnar færast til menningar- og íþróttasviðs. Stefnt er að því að byggt verði upp minna fagteymi miðlunar með áherslu á stafrænar lausnir, markaðsmál og upplýsingamiðlun.
Mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð verða lögð niður og lögbundin verkefni áfram tryggð og færð nær þeim sviðum sem sinna viðkomandi þjónustu. Borgarráð mun fara með jafnréttismál sveitarfélagsins. Verkefni sem tengjast innflytjendum, fólki af erlendum uppruna, ofbeldisvörnum og Bjarkarhlíð verða færð til velferðarsviðs. Verkefni sem snúa að hinsegin fræðslu og stuðningi við hinsegin börn og ungmenni verða færð til skóla- og frístundasviðs. Jafnframt verður stofnað öldunga- og aðgengisráð Reykjavíkurborgar sem sinnir lögbundnu samráðs- og ráðgjafarhlutverki gagnvart eldra fólki og fötluðu fólki.
Fundargerð Borgarráðs 26. júní 2026