Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 25. júní, var haldinn 5828. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:06. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Björg Magnúsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Ívar Vincent Smárason og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 24. júní 2026, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 1.048 m.kr. í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 44 1 á ávöxtunarkröfunni 3,67% en það eru um 1.066 m.kr. að markaðsvirði. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 24. júní 2026.
Samþykkt.
Halldóra Káradóttir og Bjarki Rafn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010004
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. júní 2026:
Lagt er til að borgarráð skipi Helenu Rós Sigmarsdóttur sem staðgengil regluvarðar Reykjavíkurborgar í stað Höllu Bjargar Evans.
Samþykkt.
Halldóra Káradóttir og Bjarki Rafn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22020050
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka á dagskrá svohljóðandi tillögu borgarstjóra dags. 24. júní 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að gera breytingar á stjórnskipulagi skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, frá og með 1. júlí 2026, í samræmi við markmið stýrihóps um hagræðingu og innleiðingu breytinga hjá Reykjavíkurborg, sem eru að gera stjórnsýslu Reykjavíkurborgar skilvirkari, gagnsærri og þjónustumiðaðri, draga úr kostnaði við yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur. Þetta er jafnframt í samræmi við verkefnalista í meirihlutasáttmála Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins. Tillögurnar eru eftirfarandi: 1. Stefnumótunar- og þróunarteymi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara verði lagt niður og helstu verkefnum eins og rannsóknarþjónustu, verkefnastýringu lýðheilsumála og Græna planinu hætt. Öll störf nema tvö verða lögð niður. Verkefni atvinnuþróunar færast til umhverfis- og skipulagssviðs og ytri nýsköpunar til þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Samhæfing stefnumótunar, persónuvernd og alþjóðamál verði áfram á skrifstofunni en þróuð áfram. 2. Skrifstofa samskipta og viðburða verði lögð niður. Öll störf, þ.m.t. starf skrifstofustjóra samskipta og viðburða, verði lögð niður að undanskildum þremur störfum sem sinna viðburðarhaldi borgarinnar sem verði færð til menningar- og íþróttasviðs og starfi hjá Mixtúru sem færist til skóla- og frístundasviðs. Verkefnum verði útvistað og í framhaldinu verði byggt upp fagteymi með hæfni á sviði stafrænnar markaðssetningar, samfélagsmiðlastjórnunar og gagnadrifinnar ákvarðanatöku í samskiptamálum. 3. Mannréttindaskrifstofa verði lögð niður og helstu verkefni færð til borgarráðs, velferðarsviðs, skóla- og frístundasviðs, skrifstofu borgarstjórnar, forsætisnefndar og mannauðs- og starfsumhverfissviðs. Jafnframt verði mannréttindaráð lagt niður og borgarráð fer framvegis með með jafnréttismál sveitarfélagsins samkvæmt lögum nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála. Lögbundin verkefni verði áfram tryggð. Tvö störf verða lögð niður. Öldunga- og notendaráð fatlaðs fólks í Reykjavík taki við hlutverki öldungaráðs samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um málefni aldraðra, auk hlutverks samráðshóps um málefni fatlaðs fólks samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Sjá nánari útfærslu tillagnanna í greinargerð. MSS26060171
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa skilning á því að nýr meirihluti vilji móta stjórnkerfið í takt við sínar áherslur. Hins vegar er það mikið áhyggjuefni hvaða málaflokkar verða fyrir niðurskurðarhnífnum í þessum sömu breytingum. Á tímum þar sem mannréttindi, jafnrétti, loftslagsmál og málefni innflytjenda eiga undir högg að sækja víðs vegar um heiminn og hér á landi, velur nýr meirihluti að leggja niður mannréttindaráð, mannréttindaskrifstofu, verkefnastýringu lýðheilsumála og stýringu Græna plansins. Þetta eru málaflokkar sem hafa verið í forgrunni hjá Reykjavíkurborg á síðustu árum. Stjórnkerfi og fagráð endurspegla gildismat og skyldur sveitarfélagsins. Með því að leggja niður sérhæfðar fagskrifstofur og færa jafnréttismál beint undir borgarráð er hætt við að dregið verði úr pólitískum þunga og faglegri rýni á þessum lífsnauðsynlegu verkefnum. Það er ávallt sársaukafullt að sjá á eftir hæfu starfsfólki, en mestar áhyggjur höfum við af þeirri hugmyndafræðilegu stefnubreytingu sem þessi uppstokkun ber vitni.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Breytingarnar fengu djúpa, faglega og vel ígrundaða skoðun. Þær taka mið af nýrri nálgun og stefnu meirihlutans þar sem áherslan er sett á þjónustu sem skapar virði fyrir íbúa, að fara vel með skattfé, einfalda stjórnskipulag og hagræða í rekstri. Liður í því er að færa verkefni fyrrum mannréttindaskrifstofu nær þeim sem í reynd sinna þeim verkefnum innan borgarkerfisins og fá meiri slagkraft sem er til þess fallið að ná raunverulegum árangri í þessum málaflokkum.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Þessi tillaga barst fulltrúum minnihluta með skömmum fyrirvara og lítill tími gafst til að kynna sér hana efnislega. Það sem vekur athygli er fjöldi starfa sem eru lögð niður og áhersla á útvistun verkefna en ekki er fyrirséð hver kostnaðurinn við slíkt verður sem og áhrif á samfellu verkefna. Þá á að breyta hlutverki nýstofnaðs öldungaráðs þar sem það verður öldunga- og notendaráð fatlaðs fólks. Þá er ekki skýrt hvernig utanumhaldi um Græna planið sem er heildarstefna Reykjavíkurborgar verði háttað.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 24. apríl 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda á nýjum hjólastíg við Vínlandsleið frá Laxalóni að Þúsöld ásamt almennum hliðarstígum og tengingum, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun heildarverkefnisins er 156 m.kr.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25020040
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna endurgerðar opinna leiksvæða í borgarlandi 2026, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun er 37,5 m.kr.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26060057
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Börn og fjölskyldur eru í sérstökum forgangi hjá meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar. Þessi aðgerð er ein af fjölmörgum í því að efla umhverfi barna í borginni. Nú er það hinn sögufrægi Héðinsróló sem fær uppfærslu. Yfirborð leiksvæða verður endurnýjað, nýjar hellur, gras, gervigras og fallvarnarefni sett í stað gömlu perlumalarinnar. Einnig verða leiktækin endurnýjuð og áhersla sett á að gera leiksvæðið aðgengilegt og vel upplýst yfir vetrartímann.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna endurgerðar þriggja leik- og grunnskólalóða 2026, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun leikskólalóða er 100 m.kr. og kostnaðaráætlun grunnskólalóðar er 50 m.kr.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26050400
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn fagnar þeim mikilvægu framkvæmdum sem ráðist verður í á leik- og grunnskólalóðum á árinu. Örugg, aðlaðandi og fjölbreytt útivistarsvæði eru órjúfanlegur hluti af góðu skóla- og leikskólastarfi og hafa jákvæð áhrif á hreyfingu, leik, félagsfærni og vellíðan barna. Í mörgum hverfum borgarinnar eru skólalóðir komnar á viðhaldstíma. Því er brýnt að ráðast í markvissa endurnýjun þeirra og tryggja að þær uppfylli kröfur um öryggi, aðgengi og fjölbreytt leik- og námsumhverfi en einnig sem sérstakir áfangastaðir barna og fjölskyldna utan skólatíma. Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á að framkvæmdir sem þessar verði hluti af reglubundinni og markvissri viðhaldsáætlun til að snúa við þeirri viðhaldsskuld sem bitnar á börnum og starfsfólk og blasir við um alla borgi. Endurgerð lóða við leikskólana Jöklaborg og Bjartahlíð/Hamraborg og áframhaldandi uppbygging við Austurbæjarskóla eru mikilvæg skref í þeirri vegferð að bæta aðstöðu barna í Reykjavík. Það er skýr forgangsröðun nýs meirihluta að fjárfesta í innviðum sem nýtast börnum og fjölskyldum til framtíðar. Með því er ekki aðeins verið að bæta umhverfi skólanna heldur einnig styrkja nærumhverfi hverfanna og skapa betri aðstæður fyrir komandi kynslóðir Reykvíkinga.
Fylgigögn
-
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 23. júní 2026, í máli nr. UUA2604002.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Glóey Helgudóttir Finnsdóttir og Auðun Helgason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26040081
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að Reykjavík sé borg fyrir alla. Mikilvægt er að félagasamtök á borð við Samhjálp geti sinnt mikilvægu hlutverki sínu við að styðja fólk sem stendur höllum fæti og veita nauðsynlega þjónustu af virðingu og mannúð. Borginni ber að tryggja að slík uppbygging sé í samræmi við lög, skipulagsreglur og með virku og jákvæðu samtali við nærumhverfið. Ljóst er af niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að annmarkar voru á undirbúningi málsins og að fara hefði átt í deiliskipulagsvinnu áður en byggingarleyfi var veitt. Slíkur undirbúningur er forsenda þess að jafnvægi náist milli hagsmuna íbúa, þjónustuaðila og samfélagsins í heild. Meirihlutinn leggur áherslu á að finna Kaffistofu Samhjálpar nýjan stað í borginni í sátt og samstarfi við Samhjálp, íbúa og aðra hagaðila þannig að þjónustan sé aðgengileg þeim sem hana sækja. Þjónusta Samhjálpar er ætluð þeim sem eru í neyð og hafa ekki tök á því að sjá sér fyrir mat sjálfir og er þannig gríðarlega samfélagslega mikilvæg. Miklu máli skiptir að starfsemi Kaffistofu Samhjálpar sé öflug í borginni og fái varanlega aðstöðu til framtíðar um leið og tekið er fullt tillit til skipulagslegra sjónarmiða, lögbundinnar málsmeðferðar og sjónarmiða íbúa. Traust, vandaður undirbúningur og gagnkvæmt samtal eru lykillinn að lausn fyrir þá sem þurfa á þjónustunni að halda og borgarbúa alla. Að því mun meirihlutinn vinna.
Lögð fram svohljóðandi bókun borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Við hörmum niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar um að fella úr gildi byggingarleyfi Samhjálpar. Grundvöllur úrskurðarins var að ekki lá fyrir deiliskipulag áður en byggingarleyfið var samþykkt en ekki að starfsemi Samhjálpar væri óheimil á staðsetningunni. Samhjálp sinnir gífurlega mikilvægum úrræðum fyrir jaðarsetta hópa. Þeirra framlag er ómetanlegt og samfélaginu til mikilla bóta. Lengi hefur verið leitað að staðsetningu fyrir Kaffistofuna en ekki hefur tekist nægilega vel að finna heppilegan stað. Þetta er því miður of algeng niðurstaða þegar leitað er eftir staðsetningu fyrir velferðarúrræði. Ljóst er að vinna þarf að vitundarvakningu um málefni hópa sem standa höllum fæti í samfélaginu því ekki stafar ógn af þeim hópi sem nýtur þjónustunnar. Starfsfólk Samhjálpar vinnur af mikilli fagmennsku og er með skýra verkferla ef eitthvað kemur upp á. Við hvetjum eindregið til þess að fundin verði farsæl og varanleg lausn fyrir Kaffistofuna.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Samfélagið okkar á að geta rúmað fjölbreyttar þarfir fólks. Samhjálp hefur lagt mikið í Kaffistofuna sem tryggir þeim sem búa við fátækt, heimilisleysi, félagslega einangrun eða aðrar erfiðar félagslegar aðstæður aðgang að heitum máltíðum, kaffi og öruggu umhverfi til samveru og stuðnings. Mikilvægt er að kaffistofan eigi öruggt rými í borginni okkar. Þegar öllum dyrum er lokað þá bitnar það mest á þeim sem síst skyldi sem og samfélaginu í heild. Finna þarf leið þannig að Kaffistofan geti verið á Grensásvegi en Samhjálp hafði leitað lengi að staðsetningu áður en þessi tímabundna staðsetning varð fyrir valinu. Fulltrúi Vinstrisins tekur einnig undir áherslur í bókun Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokksins.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 22. júní 2026, þar sem áfangaskýrsla eigendanefndar Orkuveitu Reykjavíkur er send borgarráði til kynningar, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
Elín Smáradóttir, Sævar Freyr Þráinsson, Eiríkur Hjálmarsson og Snorri Hafsteinn Þorkelsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26020113
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra dags. 25. júní 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að endurnýja erindisbréf eigendanefndar Orkuveitunnar og að fulltrúar Reykjavíkurborgar í eigendanefndinni verði Einar Þorsteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Pétur Marteinsson og Ari Edwald. MSS25120054
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Fylgigögn
-
Fram fer kynning Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins á flutningi verkefna, eignamati og þjónustukönnun.
Davíð Þorláksson og Markús Vilhjálmsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26010019
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Jákvætt er að ríkið setji meira fjármagn í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og komi meira að rekstrinum með tilkomu nýs félags um almenningssamgöngur. Fulltrúi Vinstrisins er hinsvegar mótfallinn þeirri framtíðarsýn að allur akstur strætisvagna verði boðinn út.
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. júní 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fela umhverfis- og skipulagssviði að gera greiningu og skipulagslega rýni á eftirfarandi uppbyggingarsamningum milli Reykjavíkurborgar og Ríkissjóðs Íslands sem samþykktir voru í borgarráði 28. apríl sl. Jafnframt er lagt til að borgarráð samþykki að fela borgarlögmanni að rýna möguleika Reykjavíkurborgar á uppsögn eða afturköllun samninganna. 1. Grensásvegur 9 – samkomulag um uppbyggingu dags. 28. apríl 2026 2. Laugarnesvegur 91 – samkomulag um uppbyggingu dags. 28. apríl 2026 3. Laugavegur 164 og Laugavegur 166 – samkomulag um uppbyggingu dags. 28. apríl 2026 4. Makaskipti á lóðum og lóðarhlutum við Ríkissjóð Íslands dags. 28. apríl 2026 5. Seljavegur 32 og Mýrargata Ánanaust – samkomulag um uppbyggingu dags. 28. apríl 2026 6. Uppbyggingarsamkomulag við Ríkissjóð vegna Borgartúns 5-7 og Guðrúnartúns dags. 28. apríl 2026.
Jafnframt er lögð fram umsögn borgarlögmanns, dags. 29. apríl 2026.
Samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar.
Málið er fullnaðarafgreitt af borgarráði með vísan til 4. mgr. 46. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar um heimildir borgarráðs í sumarleyfi borgarstjórnar. MSS26060123
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Stórt skref var stigið þegar uppbyggingarsamningar milli ríkis og Reykjavíkurborgar voru undirritaðir í vor. Með þeim var klárað mikilvægt verkefni sem hófst með viljayfirlýsingu þann 2. júní 2017 til að mæta mikilli húsnæðisþörf í borginni. Fulltrúar Samfylkingarinnar mótmæla því harðlega að nýr meirihluti tefli þessum áætlunum í tvísýnu með því að skoða riftun samninganna. Sú afsökun að ráðast þurfi í „skipulagslega rýni“ heldur ekki vatni, enda á eftir að deiliskipuleggja allar þessar lóðir og það er í því lögformlega ferli sem endanlegt byggingarmagn og ásýnd mótast. Íbúum borgarinnar mun fjölga um ríflega 40.000 manns til ársins 2050 og byggja þarf 1.200 til 1.500 íbúðir árlega. Með þessu vanhugsaða útspili er sköpuð óvissa um hundruð íbúða miðsvæðis, brýn stækkun meðferðarheimilisins Stuðla tefst og samningsbundnum ákvæðum um 20% hlutfall óhagnaðardrifinna leiguíbúða og 5% kauprétt Félagsbústaða er fórnað. Hvar á fólk að búa ef horfið er frá uppbyggingu á reitum sem þessum? Ef ný stefna er að brjóta eingöngu nýtt land í jaðri borgarinnar, hvernig mun umferðin líta út þegar tugþúsundum nýrra bíla er beint inn á stofnbrautirnar? Samfylkingin krefst þess að staðið verði við gerða samninga.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 22. júní 2026, varðandi 12 mánaða uppgjör þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025, sem fært var í trúnaðarbók á fundi stafræns ráðs þann 22. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum.
Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26040085
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 22. júní 2026, varðandi erindisbréf fyrir starfshóp um upplýsingaöryggi og upplýsingastjórnun, ásamt fylgiskjölum.
Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26060005
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á verkefnum þjónustu- og nýsköpunarsviðs og stöðu mála sem eru á verksviði borgarráðs.
Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26060022
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra dags. 23. júní 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að afturkalla afgreiðslu borgarstjórnar á fundi sínum 3. febrúar sl. og afgreiðslu borgarráðs á fundi sínum 30. apríl sl. þar sem samþykkt var að fella niður gjaldtöku í strætisvögnum, vegna reykvískra barna á grunnskólaaldri og útfærsla á skammtímalausn vegna gjaldfrjálsra strætóferða fyrir grunnskólabörn 12 ára og eldri, þar sem kveðið var á um tímabilskort í maí og júní 2026. Áfram verður gjaldfrjálst í strætó fyrir börn 11 ára og yngri.
Greinargerð fylgir tillögunni. MSS26020006
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Því miður samþykkti síðasti meirihluti borgarstjórnar ýmis verkefni sem fólu í sér verulegar og viðvarandi fjárhagslegar skuldbindingar án þess að trygg fjármögnun lægi fyrir. Slík vinnubrögð skapa væntingar hjá börnum og fjölskyldum sem ekki er hægt að efna og grafa undan trausti á stjórnsýslu borgarinnar. Nýr meirihluti tekur við erfiðu búi í fjármálum en borgarsjóður er fimm milljarða í mínus miðað við þriggja mánaða uppgjör fyrir árið 2026. Ábyrg fjármálastjórn byggir á því að ný verkefni séu kostnaðarmetin og fjármögnuð áður en þau eru samþykkt, ekki eftir á. Við nánari yfirferð hefur komið í ljós að bæði skammtímalausnin og fyrirhuguð varanleg innleiðing gjaldfrjálsra strætóferða fyrir grunnskólabörn fela í sér verulegan og viðvarandi kostnað sem var aldrei gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun borgarinnar. Því er nauðsynlegt að afturkalla fyrri samþykktir enda vantaði fjármagnið. Meirihlutinn leggur áherslu á að forgangsröðun borgarinnar verði ávallt byggð á ábyrgri meðferð skattfjár og raunhæfum fjárhagslegum forsendum. Fjármunum borgarinnar verður að ráðstafa þar sem þeir skila mestri samfélagslegri verðmætasköpun og tryggja lögbundna og mikilvæga grunnþjónustu. Meirihlutinn mun áfram vinna að eflingu almenningssamgangna og bættu aðgengi fyrir íbúa, en slík uppbygging verður að byggjast á traustum undirbúningi, ábyrgri forgangsröðun og sjálfbærum rekstri svo unnt sé að standa við þær ákvarðanir sem teknar eru.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Samfylkingin lýsir vonbrigðum með afturköllun nýs meirihluta á ákvörðun um gjaldfrjálsar strætóferðir fyrir börn á grunnskólaaldri. Þetta var einföld og skynsamleg aðgerð sem hefði gert líf barnafjölskyldna auðveldara, dregið úr skutli og umferð og aukið aðgengi barna að skóla- og frístundastarfi, óháð efnahag. Þá er mikilvægt að börn fái tækifæri til að kynnast almenningssamgöngum snemma og upplifa þær sem sjálfsagðan faramáta í daglegu lífi. Það er eðlilegt að útfærsla taki tíma og krefjist vinnu, en það er ekki góð niðurstaða að hætta einfaldlega við. Rétt er að halda áfram með verkefnið og finna farsæla leið til að hrinda því í framkvæmd – annars er verið að missa af mikilvægu tækifæri til að bæta þjónustu við börn og fjölskyldur í borginni.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Það er miður að sjá hægri meirihlutann hverfa frá stefnunni um gjaldfrjálsar almenningssamgöngur fyrir börn á grunnskólaaldri. Ákvörðun fyrri meirihluta gekk út á að afnema gjaldtöku í strætó fyrir reykvísk grunnskólabörn 12 ára og eldri og þar með náði gjaldfrelsi til fleiri barna en áður. Mikilvægt er að fjarlægja efnahagslegar hindranir úr lífi barna og tryggja að þau geti ferðast um án kostnaðar. Almenningssamgöngur eiga að vera aðgengilegar öllum börnum, óháð efnahag heimila. Ákvörðun fyrri meirihluta um að afnema gjaldtöku fyrir börn á grunnskólaaldri var liður í því að bæta aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum, styðja við sjálfstæði þeirra í daglegum ferðum og draga úr skutli foreldra vegna skóla-, íþrótta- og frístundastarfs. Þessi stefnubreyting hægri flokkanna vekur jafnframt upp spurningar um framtíð þeirra lausna sem skóla- og frístundasvið hefur byggt á í tengslum við gjaldfrjálsar strætóferðir barna. Fulltrúi Vinstrisins er sammála fyrri áherslum Framsóknar um gjaldfrjálsar almenningssamgöngur fyrir öll börn þar sem á fundi borgarstjórnar þann 3. febrúar 2026 kom fram áherslan um að gjaldfrelsið ætti að ná til allra barna, ekki eingöngu barna á grunnskólaaldri. Það vekur því athygli og furðu að Framsókn skuli nú breyta um stefnu í málinu.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 22. júní 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki að tilnefna Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur borgarfulltrúa sem aðalfulltrúa og Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúa sem varafulltrúa í samráðshóp vegna þjónustusamnings ríkis og sveitarfélaga við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. um rekstur almenningssamgangna sbr. beiðni Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 9. júní sl. Samkvæmt samningnum skal stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu tilnefna einn aðila frá hverju sveitarfélagi, þ.e. sex aðila auk varamanns fyrir hvern þeirra, í samráðshóp vegna samningsins. MSS26030018
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á eftirfylgni úrbótatillagna Innri endurskoðunar og ráðgjafar vegna samningaviðræðna Reykjavíkurborgar við rekstraraðila og lóðarhafa bensínstöðvarlóða. MSS25100071
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. júní 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki að skipa samninganefnd til þess að semja við lóðarhafa bensínstöðvalóða, sem um er fjallað í samkomulögum Reykjavíkurborgar við rekstraraðila og lóðarhafa bensínstöðvalóða frá júní 2021 og febrúar 2022, um uppbyggingu lóðanna og endurgjald á markaðsvirði fyrir aukinn og breyttan byggingarrétt lóðanna, ásamt nýjum lóðarleiguréttindum.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25100071Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn fylgir hér eftir ábendingum og úrbótatillögum frá Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar vegna bensínstöðvalóðamálsins. Hér er lagt til að að sett verði á laggirnar samninganefnd til þess að hefja samtal við lóðarhafa. Mikilvægt er að stuðst sé við skýrt verklag og að ákvarðanir um takmörkuð gæði samræmist reglum um samkeppni og ríkisaðstoð.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að lagaleg rýni staðfesti að fyrra samkomulag um bensínstöðvalóðir hafi fylgt tilmælum Samkeppniseftirlitsins frá 2017. Sú framsækna stefna að láta mengandi starfsemi víkja fyrir íbúðauppbyggingu miðsvæðis er fyllilega rétt. Samfylkingin leggst ekki gegn skipun nýrrar samninganefndar til að tryggja fullt samræmi við ríkisaðstoðarreglur EES. Breytt deiliskipulag skapar vissulega verðmætaaukningu, en brýnt er að nefndin nálgist það mat með heildstæðum og raunhæfum hætti út frá raunverulegu nettó-markaðsvirði. Við útreikning á endurgjaldi verður að taka fullt tillit til hins umfangsmikla kostnaðar við jarðvegsskipti og mengunarhreinsun, ásamt því fjárhagslega tapi sem hlýst af snemmbúinni lokun á arðbærum rekstri. Verði kröfur borgarinnar óraunhæfar munu olíufélögin einfaldlega nýta gildandi langtímasamninga sína og halda áfram rekstri stöðvanna á óbreyttum forsendum. Nefndin verður að sýna samstarfsvilja og fylgja meðalhófi svo þetta mikilvæga húsnæðis- og umhverfismál sigli ekki í strand.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 23. júní 2026, varðandi erindisbréf starfshóps til að gera og móta tillögu samkvæmt 5., 9. og 10. úrbótatillögu í úttekt Innri endurskoðunar og ráðgjafar frá 13. október 2025 á samningaviðræðum um bensínstöðvarlóðir, ásamt fylgiskjölum. MSS25100071
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 22. júní 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagt erindisbréf um nefnd til tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar og skipi Einar Þorsteinsson sem jafnframt verður formaður nefndarinnar, Björgu Magnúsdóttur, Pétur Hafliða Marteinsson og Líf Magneudóttur ásamt borgarstjóra sem fer með eigendafyrirsvar Reykjavíkur, í nefndina.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt. MSS26060049Fylgigögn
-
Lagt er til að Guðný María Jóhannsdóttir og Birkir Ingibjartsson taki sæti í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins. Einnig er lagt til að Friðjón R. Friðjónsson og Ari Edwald verði varafulltrúar þeirra.
Samþykkt. MSS26050087 -
Lagt er til að Einar Þorsteinsson, Björg Magnúsdóttir, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir og Silja Sóley Birgisdóttir taki sæti í stefnuráði byggðasamlaganna ásamt borgarstjóra.
Samþykkt. MSS26050087 -
Lagt fram minnisblað borgarlögmanns, dags. 20. nóvember 2025, um grásleppuskúr við Ægisíðu, ásamt fylgiskjölum. MSS25010069
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að Reykjavík bjóði upp á fjölbreytt tækifæri til útivistar, heilsueflingar og lifandi borgarlífs. Á undanförnum árum hefur sánumenning vaxið hratt hér á landi og er ánægjulegt að sjá nýjar hugmyndir sem hvetja fólk til hreyfingar, samveru og betri heilsu. Slík þróun getur verið verðmæt viðbót við fjölbreytt framboð borgarinnar þegar hún byggist á skýrum reglum og viðeigandi umgjörð. Jafnframt ber Reykjavíkurborg ríka ábyrgð á varðveislu menningarminja. Grásleppuskúrinn við Grímsstaðavör er mikilvægur hluti af sögu útgerðar og atvinnulífs í Reykjavík og hefur verið endurgerður með það að markmiði að varðveita þessa sögu fyrir komandi kynslóðir. Mikilvægt er að framtíðarnýting hans samræmist því hlutverki og taki mið af verndargildi hans. Þetta mál er eitt af fjölmörgum álitaefnum sem nýr meirihluti hefur tekið við frá fyrri stjórn borgarinnar. Nú liggur fyrir lagalegur ágreiningur sem þarf að leysa af festu og ábyrgð. Meirihlutinn mun vinna að því að finna farsæla niðurstöðu sem byggir á lögum, virðingu fyrir menningararfi borgarinnar og þeirri sýn að skapa áfram fjölbreytt tækifæri til útivistar og heilsueflingar fyrir íbúa Reykjavíkur.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 24. júní 2026.
9. liður fundargerðinnar er samþykktur. MSS26010020Fylgigögn
- Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 24. júní 2026
- Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 5. maí 2026
- Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 12. maí 2026
- Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 19. maí 2026
- Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 2. júní 2026
- Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 9. júní 2026
- Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 16. júní 2026
-
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Hvaða breytingar hafa átt sér stað varðandi framkvæmd og umsjón, staðsetningu, gerð sölubása og kostnað vegna leigu sölubása sem hafa verið við Austurstræti og Lækjartorg? MSS26060172
Fundi slitið kl. 13:19
Einar Þorsteinsson Ari Edwald
Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir
Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 25. júní 2026 - Prentvæn útgáfa