Samráð um nýtt hverfi á bókasafni Dalsskóla

Margar góðar hugmyndir berast
Sýning4

Opið hús verður haldið aftur í bókasafni Dalsskóla, laugardaginn 21. nóvember kl. 12-14. Ágæt mæting var á þriðjudaginn þegar vinningstillaga Nordic Office of Architecture í samstarfi við Eflu og dönsku landslagsarkitektastofuna SLA var kynnt. Hægt er að skoða sýninguna á eigin vegum fram yfir helgi og taka þátt í könnun á netinu.

Viðhorfskönnun í gangi

Þetta er liður í samráðsferli við íbúa og hagsmunaaðila við þróun skipulagsins. Höfundar tillögunnar og starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur verða á staðnum á laugardaginn milli 12-14 til að svara spurningum gesta. 

Markmið uppbyggingar er að efla húsnæðismarkað og nýta land vel með blandaðri og fjölbreyttri byggð, tengdri góðum almenningssamgöngum og náttúrugæðum svæðisins.

Sýning og samráð: Úlfarsbraut 128, bókasafn og Dalslaug.