Samið um rekstur og þjónustu í biðstöðinni í Mjódd

Róbert Reynisson
Mjódd, loftmynd. Í forgrunni strætisvagnar og framhlið biðstöðvar

Borgarráð samþykkti í dag leigusamning við GTS ehf. um leigu á hluta húsnæðisins við Þönglabakka 4, það er biðstöðinni í Mjódd. Gert er ráð fyrir að húsnæðið þjóni meðal annars hlutverki miðlægrar samgöngumiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.

Í húsnæðinu hefur verið rekin samgöngumiðstöð sem gegnir til dæmis mikilvægu hlutverki innan leiðakerfis Strætó bs. Um miðstöðina fer daglega mikill fjöldi fólks og er hún mikilvægur hluti af ferðaupplifun og þjónustu við viðskiptavini Strætó bs. Mjóddin er bæði mikilvægur tengipunktur fyrir höfuðborgarsvæðið og landsbyggðarvagna Strætó bs.

Um er að ræða þjónusturými í suðurhlið hússins og umráð yfir biðsölum beggja vegna gegnumgangs á fyrstu hæð, samtals um 426 fermetra auk sameignar. Þá mun leigutaki fá afnot af hluta bílastæðalóðar.

Leitað hefur verið um nokkra hríð eftir áhugasömum aðila til að vera með rekstur í biðstöðinni og þjónusta farþega Strætó bs og hefur nú verið samið við GTS ehf. Gert er ráð fyrir að reksturinn bjóði upp á fjölbreytta þjónustu fyrir farþega Strætó bs, verði öllum opinn og opnunartími lengdur í samræmi við tímatöflu Strætó bs.