Reykjavíkurborg segir upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af borgarlandi í Gufunesi
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í fimmtudaginn 11. júní að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af um 3900 fermetra landspildu í Gufunesi. Samningurinn var samþykktur í apríl á þessu ári, en í honum er ákvæði um að báðum aðilum sé heimilt að segja samningnum upp með þriggja mánaða skriflegum fyrirvara. Samtökum hjólabúa hefur verið tilkynnt um uppsögnina.
Á fundi borgarráðs 16. apríl 2026 samþykkti borgarráð tillögu um að gerður yrði samningur, fyrir hönd óstofnaðs félags (Samtök hjólabúa), á um 3900 fermetra landi í Gufunesi. Samningurinn var svo undirritaður af forsvarsfólki nýstofnaðra Samtaka hjólabúa og þáverandi borgarstjóra, Heiðu Björgu Hilmisdóttur þann 15. maí síðastliðinn.
Í afnotasamningnum er Reykjavíkurborg gert að tengja svæðið við vatns- og rafveitu og koma fyrir salernis- og sturtuaðstöðu í gámaeiningum. Í umsögn umhverfis- og skipulagssviðs sem lögð var fram á fundi borgarráðs í gær kemur fram að frumgreining á kostnaði við þessar framkvæmdi nemi um 50-100 milljónum króna. Þá kemur fram að sviðið hefur ekki gefið út nein afnotaleyfi vegna hjólhýsa, hvorki við Sævarhöfða eða Gufunes. Ennfremur kemur fram í umsögninni að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi upplýst að aðkoma þeirra að svæðinu hafi snúið að menguðum jarðvegi og frágangi urðunarstaðar.
Í umsögn umhverfis- og skipulagssviðs er borgarráð einnig upplýst um meginniðurstöðu starfshóps um málefni hjólabúa frá september 2025 um að varanleg búseta í hjólhýsum væri að verulegu leyti ósamrýmanleg gildandi lagaumhverfi.
Tillaga Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að segja upp afnotasamningnum við Samtök hjólabúa var samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar. Málið fer til endanlegrar staðfestingar borgarstjórnar og er á dagskrá fundarins 16. júní næstkomandi.