Reykjavíkurborg hlýtur Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2026

Reykjavík loftmynd

Reykjavíkurborg hefur hlotið Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2026 í flokknum „Sveitarfélag / stofnun sveitarfélags“.

Markviss og metnaðarfull nýsköpun í opinberri þjónustu

Verðlaunin eru veitt fyrir markvissa og metnaðarfulla nýsköpun í opinberri þjónustu á undanförnum árum þar sem áhersla hefur verið lögð á að bæta þjónustu við borgarbúa, einfalda ferla og nýta stafrænar lausnir til aukinnar hagkvæmni og betri upplifunar notenda.

Frá stjórnendadegi Reykjavíkurborgar

Þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar hefur gegnt lykilhlutverki í þessari þróun með innleiðingu notendamiðaðrar nálgunar þar sem þarfir borgarbúa eru hafðar að leiðarljósi. Með samstilltu átaki hefur verið unnið að því að gera þjónustu borgarinnar aðgengilegri, skilvirkari og einfaldari fyrir íbúa og starfsfólk.

Í umsögn dómnefndar kemur fram að árangur Reykjavíkurborgar byggi ekki á einstökum verkefnum heldur kerfisbundinni nálgun að opinberri nýsköpun sem önnur sveitarfélög og opinberir aðilar geti litið til og byggt á.

„Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi og mikil viðurkenning á því öfluga starfi sem starfsfólk sviðsins hefur unnið undanfarin ár við að þróa og bæta þjónustu við borgarbúa,“ segir Óskar Sandholt, sviðsstjóri þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar.

Verðlaunin voru afhent á Nýsköpunardegi hins opinbera í dag.