Rán Flygenring með sýningu og smiðjur í tilefni af UNESCO viðurkenningu
Í tilefni af því að íslensk sundlaugarmenning hefur verið skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns stendur mynd- og rithöfundurinn Rán Flygenring fyrir sýningu og baðteiknismiðjum í þremur sundlaugum í Reykjavík, í samstarfi við Reykjavíkurborg.
Sýningin byggir á bók Ránar, Sketching Bathing in Iceland, þar sem hún fangar íslenska baðmenningu í teikningum. Rán ferðaðist eitt sumar vítt og breitt um landið, dýfði sér í laugar, lón og náttúrupolla og skrásetti upplifunina í myndum.
Valdar myndir úr bókinni prýða nú glugga og anddyri Vesturbæjarlaugar, Sundhallar Reykjavíkur og Dalslaugar í Úlfarsárdal. Sýningin stendur út maímánuð og gefur sundlaugagestum færi á að kynnast sundlaugarmenningu landsins frá nýju og listrænu sjónarhorni.
Samhliða sýningunni mun Rán halda tvær baðteiknismiðjur fyrir sundáhugafólk á öllum aldri á Barnamenningarhátíð, þar sem þátttakendur eru hvattir til að upplifa og skrá eigin sundlaugaupplifun á skapandi hátt. Fyrri smiðjan fer fram í Dalslaug miðvikudaginn 22. apríl og sú síðari í Ævintýrahöllinni í Borgarbókasafninu Gerðubergi laugardaginn 25. apríl.
Öll velkomin!
Nánari upplýsingar um dagskrá Barnamenningarhátíðar