Ráðhúsið upplýst í gulu og bláu til stuðnings Úkraínu
Ráðhús Reykjavíkur er lýst upp í fánalitum Úkraínu, gulu og bláu, og með því vill Reykjavíkurborg lýsa yfir stuðningi við úkraínsku þjóðina.
4 ár eru nú liðin frá því að Rússland hóf allsherjarinnrás sína í Úkraínu
Úkraínski þjóðfáninn hefur verið dreginn að húni á flaggstöng við Ráðhús Reykjavíkur allt frá því að stríðið hófst til að sýna samstöðu með úkraínsku þjóðinni á erfiðum tímum.
Úkraínska borgin Lviv og Reykjavíkurborg eru vinaborgir. Markmiðið er að efla samskipti borganna og er sérstök áhersla lögð á gildi svo sem lýðræði, frelsi, réttarríkið og mannréttindi.