Öryggi og ofbeldi er þema Viku6 í ár
Vika6 stendur yfir þessa vikuna og í ár er þemað öryggi og ofbeldi. Það eru unglingar í Reykjavík völdu þemað í ár með rafrænni kosningu. Vika6 er kynheilbrigðisátak sem fjöldi grunnskóla, félagsmiðstöðva og leikskóla taka þátt í þar sem boðið er upp á aldurseigandi kynfræðslu og verkefnavinnu. Mikilvægt er að börn og unglingar þekki muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samskiptum.
Fræðsla er mikilvæg forvörnin gegn ofbeldi
Í Viku6 að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á að efla fræðslu um kynheilbrigði og skapa rými fyrir opnar, heiðarlegar og aldursviðeigandi umræður. Kynfræðsla er ein helsta forvörnin gegn kynferðislegu ofbeldi. Hún er ávallt miðuð að aldri og þroska barna og hefur það að markmiði að efla sjálfsþekkingu þeirra, stuðla að heilbrigðum samskiptum og samböndum og auka vitund þeirra um eigin réttindi.
Jafnréttisskóli Reykjavíkur undirbýr Viku6 og gerir ýmislegt fræðsluefni tengt þema hvers árs og út frá hugmyndum um alhliða kynfræðslu. Efnið er öllum aðgengilegt á vef Jafnréttisskólans og Viku6 og er þar að finna myndbönd og fræðslupakka sem skipt er niður eftir skólastigum. Öðrum sveitarfélög er velkomið að taka þátt og nýta fræðsluefnið sem þar er að finna.
Tekur fyrir vinsæla spurningu unglinga
Indíana Rós Ægisdóttir kynfræðingur og önnur verkefnisstýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur vann fræðslumyndband í samstarfi við RÚV fyrir unglinga. Í myndbandinu tekur hún fyrir eina algengustu spurningu sem hún fær frá unglingum en þau vilja vita hvernig eigi að stunda gott kynlíf. Áður en nokkur lætur sér bregða yfir titlinum „Vilt þú læra að stunda gott kynlíf?“ er gott að opna myndbandið og sjá að myndbandið fjallar í raun um að gott kynlíf snýst um samþykki, samtal og vellíðan.
Vika6 byggir á tilmælum UNESCO um alhliða kynfræðslu þar sem horft er til allra þátta kynheilbrigðis: líkamlegra, tilfinningalegra, félagslegra og andlegra.
Í Viku6 í ár er meðal annars fjallað um:
- Öryggi og mörk: samþykki, að setja og virða mörk, að þekkja óheilbrigð samskipti.
- Ofbeldi og áreitni: hvernig það birtist, hvernig hægt er að bregðast við og hvert má leita.
- Samskipti og tengsl: vinátta, virðing, fjölbreyttar fjölskyldur og sambönd.
- Réttindi barna: Barnasáttmálinn, áhrif samfélagsmiðla og að þekkja eigin raddir.