Opnun Vesturbæjarlaugar frestast um nokkra daga
Viðhaldsvinna í Vesturbæjarlaug, sem hófst 23. júní síðastliðinn, hefur gengið vel og stóð til að opna laugina aftur 30. júní. Unnið hefur verið að reglubundnu viðhaldi á húsnæði og laugarsvæði auk endurbóta sem miða að því að bæta aðstöðu gesta.
Við úttekt kom í ljós að málning í barnalaug hefur ekki náð því þurrkstigi sem þarf áður en hægt er að setja vatn á laugina að nýju. Mikil áhersla er lögð á að opna laugina við bestu aðstæður og því frestast opnun hennar um nokkra daga. Stefnt er að opnun á allra næstu dögum og verða nánari upplýsingar birtar um leið og tímasetning liggur fyrir.
Þá verður áfram unnið að úrbótum á kalda pottinum, og áætlað að hann opni nokkrum dögum síðar, en sú vinna hefur ekki áhrif á opnunartíma laugarinnar.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum gestum fyrir þolinmæði og skilning á meðan á viðhaldsvinnu stendur.
Jafnframt er bent á að árskort og aðrar áskriftir gilda í allar sundlaugar Reykjavíkur.