Opið hús í Höfða - 40 ára afmæli leiðtogafundarins

Höfði

Í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins verður Höfði opinn gestum og gangandi laugardaginn 10. október frá klukkan 10.00 til 16.00.

Á morgun gefst fólki færi á að skoða Höfða en um þessar mundir eru 40 ár frá því að leiðtogafundurinn fór þar fram. Dagana 11. og 12. október 1986 héldu Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna og Mikhail Gorbachev leiðtogi Sovétríkjanna fundi til að ræða um afvopnunarmál. Fundurinn  vakti heimsathygli og þó svo að leiðtogarnir hafi ekki komist að samkomulagi þá er það almennt almennt talið að hann hafi markað upphaf endiloka kalda stríðsins.

Söguhorn um leiðtogafundinn

Höfði hefur verið opinbert móttökuhús borgarstjórans í Reykjavík frá árinu 1967. Húsið hefur tekið litlum breytingum frá því að leiðtogafundurinn var haldinn þar árið 1986. Stofan í Höfða þar sem Reagan og Gorbachev funduðu er nánast í upprunalegri mynd og gestabókin með áritun leiðtoganna er í glerkassa í stofunni.
Frá leiðtogafundinum í Höfða árið 1986. Ljósmynd frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Frá leiðtogafundinum í Höfða árið 1986. Ljósmynd Ronald Reagan Presidential Library
Á annarri hæð þessa sögufræga húss hefur verið komið upp söguhorni um leiðtogafundinn. Þar gefur að líta valdar ljósmyndir úr safnkosti Ljósmyndasafns Reykjavíkur frá 1986. Þá verða einnig til sýnis munir sem tengjast leiðtogafundinum. Borgarsögusafn hefur haft umsjón með uppsetningu sýningarinnar.
 
Höfði verður opinn frá klukkan 10.00 til 16.00 laugardaginn 10. október 2026.
 
Frítt inn og öll velkomin.