Nýtt deiliskipulag fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar
Borgarráð samþykkti í dag tillögu Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar að deiliskipulagi fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar, frá vegamótum við Bæjarháls að sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ nálægt Hólmsá.
Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg með því að aðskilja akstursstefnur. Tvöföldun vegarins á þessum kafla er hluti af stærra verkefni sem felst í breikkun Suðurlandsvegar frá Hádegismóum í Reykjavík að Hveragerði.
Bætt öryggi og betra flæði umferðar
Samkvæmt tillögunni verður Suðurlandsvegur byggður upp sem 2+2 stofnvegur á kaflanum frá Bæjarhálsi að sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ. Með aðskildum akstursstefnum er dregið úr hættu á alvarlegum umferðarslysum og umferð verður skilvirkari. Einnig er gert ráð fyrir að vegtengingum verði fækkað frá því sem nú er, sem stuðlar að auknu öryggi og bættri yfirsýn í umferðinni.
Í deiliskipulaginu er lögð áhersla á að bæta aðstæður fyrir virka ferðamáta. Gert er ráð fyrir heildstæðu stígakerfi fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur sem eykur öryggi og aðgengi um svæðið.
Tvöföldun Suðurlandsvegar er liður í umfangsmikilli uppbyggingu á einni af helstu samgönguæðum höfuðborgarsvæðisins. Verkefnið nær til lengri kafla vegarins, frá Reykjavík að Hveragerði, og hefur það að markmiði að bæta bæði öryggi og afkastagetu leiðarinnar til framtíðar.