Nýr deildarstjóri byggingardeildar
Silvá Kjærnested hefur hafið störf sem deildarstjóri byggingadeildar á skrifstofu skipulags og byggingarmála á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborg. Ráðning hennar er liður í áframhaldandi innleiðingu skipulagsbreytinga sem miða að styttri boðleiðum, aukinni skilvirkni og betri þjónustu við íbúa og hagaðila.
Silvá er verkfræðingur með MSc-gráðu í byggingarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet og grunngráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóli Íslands. Hún hefur á undanförnum ellefu árum aflað sér víðtækrar reynslu á sviði byggingamála, meðal annars sem verkfræðingur við brunahönnun hjá Verkís og sem verkefnastjóri hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Undanfarin ár hefur hún starfað hjá ÖRUGG verkfræðistofa, meðal annars sem gæðastjóri.
Silvá er þriðji deildarstjórinn sem ráðinn er á skrifstofu skipulags- og byggingarmála samkvæmt nýju skipulagi og er þannig lagður enn sterkari grunnur að skilvirkari málsmeðferð og bættri þjónustu á sviðinu.