Ný borgarstjórn tekur til starfa í dag

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykjavíkur við Tjörnina

Ný borgarstjórn kemur til fundar í fyrsta sinn í dag þriðjudaginn 2. júní 2026 í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Fundurinn hefst á Greinargerð yfirkjörstjórnar Reykjavíkur um úrslit borgarstjórnarkosninga 16. maí 2026 

Því næst verður kosinn forseti borgarstjórnar til fjögurra ára og fjórir varaforsetar. Björg Magnúsdóttir mun gegna embættinu til eins árs. Einar Þorsteinsson verður formaður borgarráðs til eins árs og hefur svo vistaskipti við Björgu.

Hildur Björnsdóttir verður kosin borgarstjóri Reykjavíkurborgar. 

Því næst verður kosið í ráð og nefndir Reykjavíkurborgar.

Kosið verður í eftirfarandi ráð:

  • íþrótta- og tómstundaráð
  • mannréttindaráð
  • menningarráð
  • umhverfis- og skipulagsráð
  • velferðarráð
  • öldungaráð
  • leikskóla- og daggæsluráð

auk fleiri ráða og nefnda.

Þá var samþykkt að stofna stýrihóp um hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi, mun stýra þeim hópi.

Að loknu kjöri verður gert hlé á fundinum. Hildur og Heiða Björg Hilmisdóttir, fráfarandi borgarstjóri, fara á skrifstofu borgarstjóra þar sem Heiða afhendir Hildi formlega lyklavöldin.

Fundur borgarstjórnar heldur svo áfram að því loknu.

Meðal annarra tillagna á fundi borgarstjórnar er tillaga um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, endurskoðun deiliskipulags við Suðurlandsbraut, lengri opnunartíma sundlauga, samstarf við atvinnulíf um rekstur leikskóla og daggæslu og niðurlagning stafræns ráðs. Þá verður  lögð fram tillaga um að fella niður reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar.

Fylgjast má með fundinum og nálgast upplýsingar á reykjavik.is