Naustin verða vistgata sem opnar í desember

Naustin

Yfirborð Naustanna hefur umbreyst og tekið á sig skemmtilega mynd sem minnir á klassískt íslenskt prjón sem leggst yfir götuna eins og renningur á veisluborði. Útlitið er byggt á hönnun Védísar Jónsdóttur á mynstri sem nefnist „Riddari“.

Tröppulaust yfirborðið er til þess fallið að létta ásýnd götunnar. Verkinu mun ljúka í desember og nú er verið að helluleggja. Í götunni verða einnig gróðurbeð með trjám og fjölbreyttum gróðri, auk lítils sviðs sem nýtist bæði sem bekkur og sem vettvangur fyrir viðburði á hátíðisdögum. Allt göturýmið verður upphitað með snjóbræðslu.

Endurnýjun nauðsynlegra innviða

Veitulagnir voru endurnýjaðar og tvöfalt kerfi fráveitu sett í götuna, en slíkt hjálpar mjög til við að losa ofanvatn af svæðinu í mikilli úrkomu. 

Hönnun og lýsing

Landmótun sá um hönnun hins nýja göturýmis. Lota annaðist lýsingarhönnun þar sem ljósastaurar minna á möstur skipa og kastarar varpa sérstakri lýsingu á sviðið þegar þar fara fram viðburðir. Lýsingin dregur jafnframt fram ljósa yfirborðið og eykur öryggi vegfarenda. VBV sá um verkfræðihönnun og Efla um gerð myndefnis.

Gatan, sem tengir Hafnarstræti og Tryggvagötu, verður þá uppfærð í vistgötu nú í desember í samræmi við samþykkt umferðarskipulag Kvosarinnar. Reykjavíkurborg og Veitur standa sameiginlega að framkvæmdunum.