Móttökur Vestur- og Norðurmiðstöðva tímabundið sameinaðar í Efstaleiti
Síðasti dagur Vesturmiðstöðvar í Austurstræti 8–10 verður fimmtudaginn 4. júní. Frá og með föstudeginum verða móttökur Vesturmiðstöðvar og Norðurmiðstöðvar tímabundið sameinaðar í Efstaleiti 1. Önnur starfsemi Vesturmiðstöðvar verður frá föstudegi öll komin í Borgartún 12–14.
Í Vesturmiðstöð, sem er ein fjögurra miðstöðva í Reykjavík, starfa um 90 manns sem veita þjónustu, upplýsingar, stuðning og ráðgjöf á sviði velferðar-, skóla- og frístundamála. Jafnframt heyrir Rafræn miðstöð undir Vesturmiðstöð en hún er jafnan fyrsta snerting notenda við þjónustuna. Þar, líkt og í öðrum miðstöðvum, er lögð áhersla á faglegt starf og farsælt samstarf við íbúa, félagasamtök og stofnanir þeirra hverfa sem tilheyra þeim.
Vesturmiðstöð er að flytja í Borgartún 12–14 en fyrir rekur Reykjavíkurborg umfangsmikla starfsemi í Borgartúni. Flutningar hafa staðið yfir á síðustu vikum og er stór hluti starfsemi hennar þegar komin þangað. Flutningunum lýkur nú í vikunni.
Til stendur að móttaka miðstöðvarinnar verði samnýtt með þjónustuveri Reykjavíkurborgar sem staðsett er á jarðhæð. Þær framkvæmdir standa nú yfir. Af þeirri ástæðu verða þjónustuskálar Vesturmiðstöðvar og Norðurmiðstöðvar tímabundið sameinaðir í Efstaleiti næstu mánuði.
Fyrr á þessu ári flutti Austurmiðstöð á nýjan stað. Miðstöðin hafði lengi verið til húsa að Gylfaflöt en er nú á Bíldshöfða 20.
Opnunartími miðstöðva er sá sami um alla borg, frá 9 til 15.