Mönnun frístundaheimila gengur betur en fyrir ári
Nýjustu tölur um úthlutaða vistun á frístundaheimilum sýna að 3.991 barn, eða 97 prósent umsækjenda, hafa fengið pláss á frístundaheimili. Af þeim eru 129 börn ekki með fulla vistun eða um þrjú prósent heildarumsókna. Sömuleiðis eru um þrjú prósent barna enn á biðlista eða 131 barn. Heildarfjöldi umsókna í haust var 4.122.
Meirihluti frístundaheimila með fulla mönnun
Staðan er talsvert betri en á sama tíma í fyrra. Þá höfðu 3.576 börn, eða 90 prósent, fengið pláss á þessum tíma en 384 börn, eða 10 prósent, voru á biðlista. Þá voru 143 börn ekki með fulla vistun og heildarfjöldi umsókna var 3.960.
Þrátt fyrir að staðan sé betri en á sama tíma í fyrra eru enn áskoranir sem eru helst bundnar við nokkra starfsstaði á meðan meirihluti frístundaheimila er með litla eða enga biðlista. Miðað við núverandi stöðu má áætla að á milli átta og níu starfsmenn vanti í rúmlega fjögur stöðugildi.