Mjúkt net á Borgarbókasafni

Ferðamenn með farsíma fyrir utan Hallgrímskirkju

Finnst þér stundum eins og stafræna lífið sé farið að stjórna þér frekar en þú því? Komdu þá á viðburðaröð Borgarbókasafnsins og finnum út úr þessu.

Langar þig að fá betri yfirsýn og ná meiri stjórn, en veist ekki hvar best er að byrja? Hvað ef bókasafnið gæti hjálpað þér að skilja þessi ósýnilegu kerfi sem V.móta stafrænt daglegt líf okkar og stutt þig í að endurheimta stjórn á tíma þínum og gögnum ? 

Verkefnið er framlag Borgarbókasafnsins til Miðlalæsisviku 2026 og verður jafnframt heildstæð viðburðaröð haustið 2026 og fram á vor 2027.

Komdu með símann þinn, spurningarnar, reynsluna og jafnvel gremjuna og taktu þátt í Mjúku neti, vikulegum samverustundum þar sem við lærum saman og hvert af öðru. Þátttakendur miðla eigin þekkingu og reynslu, ásamt sérfræðingum í öryggi farsíma og textíllistafólki sem vinnur með skemmtilega hugmynd um svefnpoka fyrir síma.

Skoðaðar verð persónuverndarstillingar, aðgangsheimildir forrita og hin mörgu huldu lög stafrænnar sjálfsmyndar sem verða til þegar tæknikerfi túlka hegðun okkar. Við rýnum meðal annars í hvernig stafrænir miðlar draga ályktanir um áhugamál, venjur og þarfir og hvernig slíkar upplýsingar hafa áhrif á það sem við sjáum, lesum og upplifum á netinu. 

 Þar ætlum við að kafa ofan í samband okkar við tækni, miðla og stafrænt líf, með gagnrýnni hugsun, sköpun og lýðræðislegri þátttöku að leiðarljósi.

Á dagskránni verða meðal annars:

  • Skapandi fjölskylduviðburðir í öllum starfsstöðvum Borgarbókasafnsins.
  • Vikulegar samverustundir þar sem fjallað verður um persónuverndarstillingar, aðgangsheimildir smáforrita og það sem liggur að baki stafrænni sjálfsmynd okkar; meðal annars hvernig kerfin flokka okkur út frá áhugamálum og hegðun.
  • Vinnustofur þar sem saumaðir verða síma-svefnpokar úr Faraday-efni.
  • Miðlasúpa, afslappaðar umræðustofur með súpu, brauði og umræðum um stafrænt samfélag framtíðarinnar.

Mjúkt net vikulegar samverustundir