Mikilvægt að yfirfara leikskólaumsóknir fyrir 2. mars

Mynd af börnum að leika á leikskólalóð.

Nú styttist í að úthlutun leikskólaplássa fyrir haustið 2026 hefjist í öllum leikskólum borgarinnar. Innritun hefst 2. mars 2026 og frá þeim degi verður unnið úr umsóknum sem hafa borist, til 15. apríl 2026. Á meðan verður ekki tekið á móti nýjum umsóknum og ekki hægt að breyta innsendum umsóknum fyrr en að tímabilinu loknu. 

Allar umsóknir fara í gegnum Völu

Í fyrstu atrennu er börnum sem eru fædd í febrúar 2025 eða fyrr boðið pláss. Að stærstum hluta er verið að úthluta þeim plássum sem losna þegar heill árgangur barna hefur grunnskólagöngu og á ungbarnaleikskólum vegna plássa sem losna vegna flutnings eldri barna í almenna leikskóla. Fyrstu boð verða send út fljótlega eftir að innritun hefst en alla jafna tekur nokkrar vikur að úthluta þeim plássum sem vitað er að losna í haust.

Við minnum á að sækja þarf um vistun bæði í borgarrekna og sjálfstætt starfandi í gegnum Völu. Ekki verður unnt að gera breytingar á umsóknum eða skrá nýjar umsóknir meðan á úthlutun stendur.

Mikilvægt er að foreldrar og þau sem fara með forsjá barna yfirfari sína umsókn fyrir 2. mars.

Hvaða börn gætu átt von á að fá boð?

Fyrst verður unnið með umsóknir barna sem eru fædd í febrúar 2025 eða fyrr, það eru börn sem verða orðin 18 mánaða 1. september 2026.  Farið er eftir kennitöluröð og boðið koll af kolli eftir aldri.

Undantekningar á kennitöluröð eru börn sem hafa fengið samþykktan forgang í leikskóla, til dæmis vegna fötlunar eða alvarlegra félagslegra aðstæðna. Sjálfstætt starfandi leikskólar hafa börn í forgangi sem eru með lögheimili í Reykjavík, eru næst í kennitöluröð og velja viðkomandi leikskóla í fyrsta val á tímabilinu 1. mars til 15. apríl. Sjálfstætt starfandi leikskólar í Reykjavík hafa samið um frávik frá innritun eftir kennitöluröð í einhverjum tilvikum, svo sem til að fylla kynjakvóta eða til að vera innan aldursviðmiða leikskólans.

Í borgarreknum ungbarnaleikskólum (Bríetartún og Hallgerðargötu) er hægt að sækja um fyrir börn á aldrinum 12–24 mánaða og er þá miðað við aldur barns 1. september. Í sjálfstætt starfandi ungbarnaleikskólum (Ársól, Lundi, Krílaseli, Sólgarði) er hægt að sækja um fyrir börn á aldrinum 9–24 mánaða og er þá miðað við aldur barns 1. september. Athugið að skilyrði fyrir vistun í Sólgarði er að foreldri stundi nám við HÍ.

Umsóknir sem berast eftir 2. mars bætast við biðlistann eftir 15. apríl.

Get ég séð hvar mitt barn er á biðlista?

Hægt er að sjá stöðu barns á biðlista í þeim skólum sem sótt var um á Vala leikskóli. Þegar umsókn er útfyllt í fyrsta sinn þarf að skrá minnst tvo leikskóla og mest sjö leikskóla. Við hvetjum þig til að skoða vel umsókn barnsins þíns til að tryggja að val sé rétt skráð. Ef foreldri velur sjálfstætt starfandi leikskóla sést það í Völu. Hægt er að breyta eða bæta við leikskólum, allt að sjö, fram til 2. mars.

Leikskólareiknirinn er byggður á lifandi gögnum

Leikskólareiknirinn er einfaldur í notkun. Fæðingardagur barns er sleginn inn í leitarvél ásamt hverfi og er þá reiknuð út áætluð staða barnsins á biðlistum í leikskólum í viðkomandi hverfi. Niðurstaðan er byggð á fæðingardegi barns, umsóknum sem þegar hafa borist, fjölda barna sem hætta vegna grunnskólagöngu og fleiri breytum. Hægt er að sjá staðsetningar á korti og bera saman leikskóla nálægt heimili fólks eða vinnu. Leikskólareiknirinn er byggður á lifandi gögnum sem uppfærð eru einu sinni dag. Niðurstöður úr reikninum gefa ekki gefið loforð um pláss. Hann sýnir hvar í röðinni þitt barn myndi lenda í þeim leikskólum sem þið hafið hug á þann dag en það getur breyst eftir því sem umsóknum fjölgar eða fækkar.

Enn sem komið er nær leikskólareiknirinn aðeins yfir borgarrekna leikskóla.

Ef einhverjar spurningar vakna bendum við á þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111, netspjallið á vefnum og netfangið innritun.leikskolar@reykjavik.is.