Listafólk framtíðarinnar fyllir miðborgina af lífi
Götuleikhús og Listhópar Hins Hússins eru skapandi vettvangur þar sem ungt listafólk vinnur að fjölbreyttum og lifandi verkefnum. Í sumar, líkt og fyrri ár, hafa hóparnir staðið fyrir kraftmikilli og lifandi dagskrá í miðborg Reykjavíkur. Föstudagsfiðrildi verða á dagskrá á föstudaginn, ekki missa af!
Reynslan sýnir að í þessum hópum leynast jafnan margar af framtíðarstjörnum íslensks listalífs og því er þetta kjörið tækifæri til að upplifa sköpunarkraft unga fólksins og sjá hugmyndir verða að veruleika.
Föstudagsfiðrildi í miðborginni – 26. júní klukkan 12:00–14:00
Föstudaginn 26. júní fyllist miðborgin af gjörningum, tónlist og sýningum frá listhópunum.
Viðburðir fara fram á nokkrum stöðum í miðborginni og á hverjum stað er dagskráin endurtekin á tímabilinu, þannig að gestir geta gengið á milli og upplifað fjölbreytta viðburði í þeirri röð sem þeir kjósa.
Dagskrá:
- Götuleikhús Hins Hússins @ Lækjargata
Skvísuskrímsli fara um Lækjargötu og bjóða vegfarendum að staldra við og upplifa óvænta fegurð í borgarrýminu. - Dúó Koblía @ Safnahúsið
Klassísk tónlist eftir Beethoven, Schubert, Chopin og fleiri flutt á fiðlu og píanó. - Alltílagi? @ Mót Skólavörðustígs og Laugavegs
Sýning á „besta listaverki allra tíma“. - Upplistand módernistans @ Horn Austurstrætis og Pósthússtrætis
Gjörningur sem rannsakar uppruna í gegnum eina langa setningu í vitundarflæði. - Listanetið @ Borgarbókasafnið Grófinni
Sýnishorn af verkum sumarsins og lifandi sköpun í samtali við gesti. - Á Rauðum sokkum @ Borgarbókasafnið Grófinni
Textílverk innblásið af íslenskri kvennabaráttu og samstöðu. - Samtal við píanóið @ Neskirkja
Klassísk tónlist í lifandi samtali við píanóið. - Styttuvík @ Vatnsberinn, Lækjargata / Bankastræti
Gjörningur við styttu Vatnsberans í borgarrýminu. - Borgin og blómin @ Gróðurhúsið við Lækjartorg
Ljósmyndaverk sem skoðar náttúrufegurð innan borgarmarka. - Hljóðheimar í Reykjavík @ Laugavegur
Gestum er boðið að taka þátt í að skapa sameiginlegt hljóðverk úr borginni sjálfri.
Vængjasláttur – lokahátíð 9. júlí
Lokahátíð Listhópanna, Vængjasláttur, fer fram í miðborginni 9. júlí klukkan 16:00–18:00. Nánari upplýsingar verða settar á Facebook-síðu Listhópa Hins Hússins þegar nær dregur.
Upplýsingar um hópana og verkefnið í heild.